Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstađa: Single
  • Um mig: Ég er fćddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annađ: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríiđ

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburđir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Ace í Sumarfrí!

29. apríl 2007 klukkan 20:30
Jább, Þannig er það nú bara. Ace.Bloggar.Is er í sumarfríi ... og ehm því mun ljúka þegar ég nenni að byrja aftur. Góðar stundir!
Ace Johnson
19 athugasemdir

Mögnuđ Helgi á Akureyri.

16. apríl 2007 klukkan 02:26
Akureyri!Vá! Langt blogg! =P Játs, Ég er vægast sagt bara mjög sáttur með liðna helgi. Mikið gaman, mikið fjör. Djamm, fótbolti og söngvakeppnin. Dagarnir fyrir helgina voru nú ekki uppá marga fiska samt..

Skólinn jú byrjaður og ekkert nema ágætt um það að segja svo sem, nema hvað kennarinn sem kennir mér hvað mest var veik á fyrsta degi. Það er kannski ekkert leiðinlegt að fá frí í tíma en að rífa sig á fætur klukkan átta og troða í sig kaffibolla, keyra í skólann og BAM! enginn tími. Það er svona smá pirrandi. Sérstaklega vegna þess að maður getur ekki sofnað strax eftir kaffibollann sko. Ég fór bara á bókasafnið að lesa blöðin og mætti svo í tíma númer 2 og end of story.

Dagur tvö. Ég var náttúrulega ekkert að hafa fyrir því að tékka hvort kennarinn sá hinn sami væri veikur aftur og rauk ég í skólann (kl 9 í það skiptið), útúr koffínaður, með hárgreiðslu mánaðarins og BAM enginn tími aftur... Ég bara "Vááá... come ON!" .. fór heim, í rúmið og lá vakandi í rúman klukkutíma með galopin augun, hlustandi á tónlist..

Dagur þrjú. Núna ætlaði ég sko ekki að fara í skólann án þess að tékka hvort hún væri veik aftur! Fór á netið eldsnemma átta, ýkt pirraður eins og venjulega á morgnanna, hélt á kaffikrukkunni minni og tékkaði vma.is síðuna til að sjá hvort kvikindið væri veik aftur (with hope =P), en neinei, núna var hún ekki á listanum yfir veika kennara þannig að ég bara gerði mig til í hvelli og drakk kaffið á leiðinni í skólann. Brúmm brúmm.

Ég gekk inní stofuna og hún var full af einhverjum krökkum sem ég hafði aldrei séð áður, og svo var einhver allt annar kennari líka. Ég gekk út aftur og hugsaði. "þetta meikar ekki sens!" fór aftur inní stofuna og kennarinn sagði við mig: "Heyrðu já, hún Katrín er veik þannig að ég stal stofunni" .. ..... .... %$#&%"!! ... Þá hafði bara GLEYMST að setja hana á listann einmitt þennan dag... Devils..

Jáhh! =Þ Helgin var samt góð. Föstudagurinn var rólegur, kýkti í heimsókn til Arnþórs og Söndru. Einnig voru þar Fanney, Lárus, Valdi, Jakob (sænski) og Björgvin Óli (bróðir Guffu). Nokkrir bjórar drukknir, horfðum með öðru auganu á Snatch (snilldar mynd btw) og þetta var bara nice. Svo fórum við á Capone og vá.. bara biðröð af 16-19 ára krökkum fyrir utan. Maður asnaðist nú inn eftir nokkra bið og ég þekkti ekki einn mann þarna inni.. Mestall Reykvíkingar pott þétt. Svei, labbaði á Kaffi Ak og hitti Sólveigu, Jóhönnu og Þórdísi þar og settist ég hjá þeim. Þetta var fínt, rólegt og ágætt.

Vaknaði um hádegi á laugardeginum og fór ég með öllu Magnaliðinu til Grenivíkur á æfingu. Hressandi ferð í góðu veðri. Svo þegar við komum til baka skrapp ég á rúntinn með Lárusi kvikindi. Gaman að rúnta um bæinn í góðu veðri. Anyways! Um kvöldið kom Jón Þór og sátum við niður að gömlum vana og fengum okkur bjór. Egill kallinn kom líka í heimsókn en Jói beilaði! Beiler Jói! =P gríngrín!. Söngvakeppnin náttúrulega í gangi þetta kvöld líka og þar sem ekkert sjónvarp er í íbúðinni núna, þá horfðum við Jón Þór svona lauslega á þetta á netinu. Ég verð nú að viðurkenna að ég missti af Bjössa kallinum en ég frétti að hann hefði farið á kostum. Seigur kallinn. Ég heyrði sigurlagið, sem var einmitt frá VMA, hóhó! Vel sungið hjá stráknum og Unnur Birna á hljómborðið! en hún var einmitt með mér í leikskóla og grunnskóla á laugum. Ási frægur..

Fórum svo þrír á djammið! Við vorum orðnir vel ölvaðir þegar við ákváðum að fara niðrí bæ. Allavega ég og Jón Þór. 'Eníveis!' Okkur var skutlað niðrí bæ og byrjuðum við á Amour. Amour er orðinn slappur finnst mér.. Aldrei neitt fjör þar lengur fyrir minn smekk. Bara einhver lýður þar sem þykist vera of fínn fyrir alvöru sukk! =P. Við fórum bara strax á Kaffi Ak ef ég man rétt.. err.. Egill kom nú ekki með okkur, hann fór á Capone. Svo var djammað og djammað og fullt af fólki sem maður þekkti á Kaffi Ak. VMA-ingar, gamlir félagar frá Laugum og Magnamenn. Búkollubátur eftir djammið.. bara fáránlega góð máltíð þegar maður er fullur. Öss! Great Success!

Við Jón Þór náðum einhvern veginn að fiska far heim hjá ókunnugum stelpum. Egill og kona hans komu seinna með Taxa og so bra Zzzzzzzzzzzzzzz.... með góða tónlist á fóninum.

Music!BAM! Sunnudagur og engin þynnka. Whaaaat?! Jáh! Alger snilld. Jón Þór var samt að drepast úr þynnku og spurning hvort hann hafi tekið minn kvóta líka, hehe. En.. þegar strákarnir voru farnir fór ég í sund í góða veðrinu með Steina Magnamanni og damn! Það var nice. Sól og blíða. Fullt af fólki (og gellum) í sundi og kannski ekkert skrítið. Jebbs, snilld. Og þannig hljóða síðustu dagar í lífi Ace.

Ætla enda þetta á ljúfum tónum sem ég nældi í "alveg löglega" í gegnum netið í kvöld. Shibbý!

30 Seconds To Mars - The End Of The Beginning
Death Cab For Cutie - Soul Meets Body
The Postal Service - The District Sleeps Alone Tonight
Disturbed - Prayer

Enjoy your weekend! Love, Ace!
Ace Johnson
7 athugasemdir

Svona eiga frí ađ vera!

10. apríl 2007 klukkan 15:12
Lazy polarbears!Maður hefur verið með smá svona móral, eða þúst samviskubit yfir "the extreme laziness" sem hefur verið á manni í í páskafríinu. Ég hef nánast ekkert gert! .. nema spila fótbolta, vera í tölvunni og djammað aðeins. En hey! Þá hugsaði ég. Þetta er nú páskafrí, og ef þetta á að heita frí, þá er nú bara eins gott að taka sér frí! Annars fyrir þá sem nýta frí-ið til að vinna, þá er það náttúrulega bara mjög sniðugt líka. En að hafa samviskubit fyrir að vera latur í fríi. Það er alger óþarfi.

Kominn með æði fyrir einu lagi sem er spilað á X-inu stöku sinnum. Þetta er nú ekkert glænýtt lag en mjög róandi eitthvað. Here it is: The Postal Service - Such Great Heights . Love it. Jámms!

Síðustu dagar hafa semsagt verið mjög 'nice' .. Sofi sofi sof, spörk hafa dunið á boltum og létt hefur verið á bjórflöskum. Venjulega drekk ég Viking Gylltan en núna síðast drakk ég Budweiser Budvar og er þetta ekki sami Budweiser og Steini kallinn drekkur (sem er hryllilega vondur) No offence Stone! .. heldur er þetta tékkneskur eðalbjór. Mæli með honum!

Now, plan-ið fyrir síðustu helgi fór forgörðum. Plan-ið var s.s. að djamma ekki og hanga heima í leti og kannski læra smá. (Yeah right =P) Ég hef ekkert lært heima í páskafríinu, og ég nennti ekki að vera heima og vera í fríi frá fótboltanum, þannig að ég keyrði bara á ak til að fara á æfingar. Og svo djammaði ég eiginlega báða dagana um helgina, ehm (s.s. Lau. og Sun.) Öss!


Jáh, Jón Þór kom í heimsókn. Hann nær alltaf að draga mig á djammið =P en þau djömm hafa yfirleitt verið snilld. Á laugardaginn andskotaðist maður í Sjallann, á.. err, hvað var nú aftur í Sjallanum þá? Man ekki! Anyways, fór með Jóni Þór en við vorum haug-ölvaðir! Það var samt hörkufjör í Sjallanum og hitti maður fullt af fólki. Palla kallinn (raufarhöfn-ingur ..) og Steina (Stone!) og Þóreyju og Magga. Svo voru.. err, man nú ekki eftir miklu en það voru allavega fullt af konum og bjór!.. og dansi! Ég týndi Jóni Þór snemma eins og venjulega en Hössi kallinn var driver og reddaði okkur báðum heim einhvern veginn.

Páskadagurinn byrjaði svo með smá þynnku, ekkert nema gott um það að segja svo sem. Err.. svo lá ég bara í leti allan páskadaginn held ég, þangað til ég fékk Jón Þór aftur í heimsókn. Hann bara: "á ekkert að djamma í kvöld eða?" Ég bara.. "err err.. maður kýkir kannski með þér niðrí bæ, í einn bjór" Svo varð bjórinn af tveim, og tveir bjórar að skotum og þriðja bjór.. En það var samt hörkufjör! Það var svo pakkað á Kaffi Ak að það var biðröð fyrir utan í smá tíma. Hitti Gunna og Þóru ex-bosses, Svenna og Jóhönnu Elínu og einhverja fleiri. Ýkt fjör. Hitti nokkra Magnamenn og þeir bara: "Bíddu, ert þú ekki að fara á æfingu í bítið eða?" Ég bara "Sömuleiðis!" Hehe. Sofnaði kl. fimm eða eitthvað.

Annar í páskum: Reif mig á fætur kl. 10:30! Æfing, ég hélt að ég myndi deyja þegar klukkan hringdi. Skellti í mig tveim banönum og kaffibolla og æfingin var bara mjög hressandi. Magnað alveg. Þeir Magnamenn sem ég hitti á djamminu kvöldið áður létu nú ekki allir sjá sig =P (suckers!) Svo fór maður aðeins á rúntinn fyrir svefn aldarinnar.

Vaknaði í "morgun" kl. 12:30 eftir laaaangan og góóóóðan svefn. Bam! Fór í tölvuna að blogga, drekkandi kaffi og hlusta á fína tónlist. Og núna er ég orðinn svangur! ... Ætla fara út að finna mér eitthvað að borða. Bæjó.

Fullyrðing vikunnar kemur frá Möllu frænku!. "Ég veit sko alveg hvað klaki er.. það er vatn sem dó úr kulda!" .. =P hehe.
Ace Johnson
5 athugasemdir

Óendanleg Leti..

04. apríl 2007 klukkan 15:51
Sæti Páskaungi!Páskafríið komið, nánast ekkert að gera nema að sofa. ZzZzzzzz... Það er svo gott að sofa..

Maður var nú reyndar kominn á lappir kl 10:30 í morgun.. en ég hef varla gert handtak síðan. Netið 'browse'-að, kýkt á Liverpool.is, Fotbolti.net, MySpace og eftir það fór ég aðeins að dútla mér við nýju undirsíðurnar á bloggar: "Music Videos" og "Funny Videos" Er að bæta við myndböndum smátt og smátt. Jebbsí.

Fékk mér svo lýsi, skyr og kaffi. Kaffi! Margir hata, eða þola ekki kaffi. Mörgum finnst kaffi bara vont og jafnvel gagnslaust. Sumum finnst kaffi gamaldags og flestir undir tvítugs drekka bara aldrei kaffi. Ég varð nýlega 'hooked' á kaffi. Mér finnst kaffi gott og það fyrsta sem ég geri á virkum degi er að skella í mig kaffibolla. Why?! Það svínvirkar! Þetta virkar eins og eldsneyti sem kemur manni í gang á morgnanna. Alger snilld. Hins vegar er ekki hollt að drekka 4 bolla á dag eða meira. Einn - tveir bollar á dag gera manni engan skaða. Þvert á móti. Jæjah..

"Gaman" að segja frá því að ég fékk SMS frá Daxa um daginn. Ætli það hafi ekki verið 1. apríl líka. Anyways, sms-ið hljóðaði einhvern veginn svona: "Hæ, geturðu hringt í mig!.. Need 2 talk! í síma 5359988. Minn er batteríslaus" ... Og viti menn! Ég er náttúrulega góður gaur og hringdi, fyrst að Daxi honey þurfti svona "endilega" að tala við mann. Nei nei, kemur ekki: "Góðan daginn, þetta er hommalínan blablabla, ýttu á 1 fyrir .. blablablah! o.s.fv. ... " Ég hringdi beint í Daxa og skammaði hann fyrir að skemma daginn fyrir mér =P Nei gríííín! Þetta var bara fyndið. =)

Núh, Loksins unnum við (Magni) leik í Lengjubikarnum og var það mjög sætur sigur. 3-2 sigur gegn Reyni/Dalvík. Og loksins fékk ég að byrja inná líka, fékk meirað segja númerið mitt #11 einnig. Var settur á vinstri kantinn þar sem ég á heima og var bara sáttur með mína frammistöðu. Maður spilaði nú bara fyrri hálfleik samt, og var það alveg nóg fyrir mig enda alveg búinn á því í leikhléinu.

Mér fannst við betri í leiknum, allavega í fyrri hálfleik en Reynir/Dalvík skoraði fyrsta markið þrátt fyrir það. Hreggó kallinn jafnaði bara mínútu síðar og kom okkur svo yfir 2-1 þegar meira var liðið af fyrri hálfleik. Svo misstum við fyrirliðann Ingvar útaf rétt fyrir leikhleíð og vorum við einum færri eftir það.
Í seinni hálfleik komust Reynir/Dalvík betur inní leikinn og sóttu mikið. Viktor (gaur sem er með mér í ensku =P) jafnaði með rosalegu skoti fyrir utan teig. Svekkjandi, en undir lokinn datt boltinn fyrir Palla bakvörð og skoraði hann sigurmarkið á 88. mínútu við gríðarleg fagnaðarlæti á bekknum. Mikið gaman, mikið fjör.

Ekki nóg með að við fengum þrjú stig hjá Reyni/Dalvík, heldur fengum við önnur þrjú gefins frá Leikni F. Takk Jói! En.. þeir voru víst með ólöglegan varamann þegar þeir kepptu við Magna helgina áður. Hrikalegur dómur fyrir Jóa og Egil og þetta eru ekki þrjú stig sem Magnamenn geta verið stoltir af, að hafa fengið. Svona er þetta nú samt stundum.

Plan helgarinnar er ekki merkilegt. Ég held að ég geri bara ekki neitt nema hanga heima á Húsavík.. ... Ég meina hanga á Húsavík þar sem Mamma og Pabbi eiga heima! ekki ég! ... og læri kannski smá. Stefni á djammlausa helgi en það gæti nú breyst. Maður verður að vera duglegur síðustu vikurnar í skólanum. Jamms. Svo þarf maður að fara finna vinnu og húsnæði bráðum. Fullt að gera.

Þetta er orðið ágætt núna. Heyri í ykkur.
Ace Johnson
4 athugasemdir

Tónlist, ég elska tónlist!

30. mars 2007 klukkan 21:00
Music!Eftir "menningarshock-ið", er ég flutti frá Laugum og til Akureyrar, fór maður að hlusta meira á tónlist, og þá er ég ekki að meina þetta gamla góða, heldur nýtt 'stuff'. Þið vitið, þessar helstu útvarpsstöðvar, X-ið og.. og... þúst hitt ruslið stundum, ekki bara Rás 2. Maður fór að hlusta á eitthvað annað en Muse, Smashing Pumpkins og Oasis þótt þessar þrjár séu náttlega snilld.

Jæjah! Ég er byrjaður að hlusta mikið á bönd frá Skandinavíu núna. Meðal annars sænska rokkbandið "Kent". Mæli með því að þið tékkið á þessari hljómsveit, svona Coldplay/Sigur Rós 'bragð' í rokkinu þeirra.

Svo hef ég mikið verið með "Mew" á heilanum, rokkband frá Danmörku. Jói kallinn smitaði mig rosalega af þessu snilldarbandi.

Ég hef aldrei gefið mér tíma til að hlusta alminnilega á "HIM" frá Finnlandi, sem er náttúrulega bara frábært rokkband! með Ville Valo í broddi fylkingar.

Svo er það "Dikta"! sem er íslenskt indie rokk band. Alveg ótrúlegt að maður hafi ekki heyrt
meira af henni. Þessir gaurar eru snllingar! Frábær tónlist sem ég hafði ekki heyrt mikið af fyrr en Jói kom í heimsókn síðustu helgi (takk aftur Jói).

Ég fíla nánast ekkert íslenskt, eiginlega bara Sigur Rós og Mínus. Þessir er mættir í þann hóp. Good stuff.

Ætla að skella nokkrum linkum af radioblogclub og myspace með lögum frá þessum fjórum hljómsveitum, daglegt brauð fyrir suma, upprifjun fyrir marga, og vonandi uppgötvun fyrir einhverja. Þetta er hágæða rokk frá norðulöndunum. Veskú!

Kent - Pärlor (Rólegt og gott.)
Kent - Max 500 (Fínt lag af nýjustu skífu þeirra.)
Kent - FF (Gegt lag.)

Mew - Myspace - "The Zookeeper's Boy" og "Special" eru frábær. Nýji diskurinn þeirra "And The Glass Handed Kites" er þessi virði að kaupa/downloada. Frábær skífa.

HIM - Rip Out The Wings Of A Butterfly (Geðveikt lag!)
HIM - Right Here In My Arms (Með flottari lögum frá þeim.)
HIM - Wicked Game (Flott Cover.)

Dikta - Myspace - "Breaking The Waves" er mjög flott lag hjá þeim.

Þar hafiði það. Áður en ég fer að njóta pásakfrísins og opna fyrsta bjórinn langar mig að gera lítinn lista sem mér þætti gaman ef þið mynduð fylla út, ekki mikið verk (samt lúmskt erfitt).

Nefnið fimm uppáhalds hljómsveitir ykkar! Do it! (.. or i'll kill you!)

Minn listi:

#1 Muse
#2 Smashing Pumkins
#3 Oasis
#4 Sigur Rós
#5 Placebo


Your Turn! - Ciao!
Ace Johnson
10 athugasemdir

What a Weekend.. Beer, Women.. Football 'n Pizza!

26. mars 2007 klukkan 12:24
Miller Time!Jahérna hér.. Þessi helgi var rosaleg! Hún var ekki ósvipuð og síðasta helgi átti að vera. Jói kallinn kom í heimsókn en hann átti að keppa í fótbolta á sunnudeginum, og einmitt við liðið mitt Magna. Hann ákváð því að taka forskot á sæluna og kýkja á Akureyri strax á föstudeginum. Ég bauð honum bara gistingu enda nóg pláss! Svo kom Þórhallur líka, og þurfti hann náttúrulega gistingu líka. Ekki málið! Nóg pláss!

Eftir fótboltaæfinguna mína á föstudeginum pöntuðum við (Ég, Jói og Þórhallur) pizzu frá Greifanum. Svo hringdi mar náttlega í Jón Þór sko, aðeins að tékka á kallinum, hvort hann nennti ekki að kýkja aðeins á djammið. Hann bara "jújú, vantar reyndar gistingu sko" Ég get nú reddað því kallinn minn sagði ég. Plássið virtist endalaust þegar maður var búinn með nokkra bjóra. Sjálfur er ég í alveg magnað lélegu bjórþambsformi og þarf maður ekki mikið þessa dagana. Sem er gott!

Svo var bara setið heima í chillinu, bjór drukkin, pizza étin, og horft á myndbönd og hlustað á tónlist í tölvunni, happy times! En jáh, svo kom Jón Þór seinna um kvöldið, og svo tókum við bara Taxa niðrí bæ og fórum við fyrst á Kaffi Ak. Þar hittum við fullt af fólki, Sandra, Sólveig, Árni Rúnar og fleiri voru þar t.d. Ég var nú ekkert mjög duglegur í drykkjunni, enda leikur á sunnudag. Var bara rólegur.

Eftir að hafa verið á Kaffi Ak um stund fórum við Jói á Amour og svo hittum við Jón Þór og Þórhall á Capone eftir það. Alveg merkilegt hvað Capone hefur farið hamförum, þetta er orðinn ótrúlega vinsæll staður og ekkert nema gott um það að segja. Mar fékk sér smá sambúkka og mikið fjör. Tikk Takk, Taxi, heim! eða c.a. þannig. Great Success!

Laugardagur! Jón Þór fór á Lauga, Jóhann sofandi og Þórhallur nývaknaður og "hress". Það er svo mikil snilld að eiga kalda pizzu frá deginum áður. <3

Þórhallur fór heim líka fljótlega eftir hádegið. Ég og Jói fórum út að skokka til að hressa okkur við, fórum svo í pottinn og gufu eftir á. Djöfull var það nice. Meiri pizza, étin, meiri tónlist, tölvuslór, og mar fór í letigírinn. Ég og Jói vorum eiginlega búnir að ákveða það, að fara ekki út að djamma á laugardagskvöldinu, Sálin í Sjallanum.. og allir á djamminu! ...

Við fengum okkur Miller eða tvo heima, ýkt fúlir eitthvað. Svo fórum við bara í Sjallann =P Nenntum þessu ekki. 2500 kr. takk. Djöfulsins okur, en þetta var nánast þess virði. Maður hitti fullt af kunningjum í Sjallanum eins og venjulega. Því miður hitti ég Lárus, og eftir það sá maður aðeins eftir 2500 kallinum =P Vá! Verð eiginlega að segja ykkur frá gömlu gellunni.. díses maður.

Ég og Jói fengum okkur sæti, uppi í Sjallanum. Kemur ekki þessi gamla jússa. Hún var nú ekkert ómyndarleg en þúst líklega í kringum fertugt, með tattú og alles. Við ekki alveg að meika hana eftir smá tíma og sögðumst ætla á klósettið. Hún bara "Já okei" og byrjaði að leiða Jóa =) Haha, djöfull var það fyndið. Við sögðum "Heyrðu, við komum eftir smá, vertu hérna eftir tíu mínútur okei?" Svo hlupum við niður! Jáhh, þetta var rosalegt.

Fín skemmtun samt og fjör í Sjallanum. Tikk Takk, Taxi (eða einhver vinkona Jóa sem var á bil) og heim! Jibbí!

FootballSunnudagur! Vöknuðum, fórum út í Samkaup Strax og fengum okkur smá morgunmat og hresstum okkur aðeins við úti á sparkvelli. Leikurinn byrjaði kl. 16:15 og sökkaði hann feitt (fyrir mitt lið!) Magni líklega í betra formi og vorum við miklu meira með boltann. Nýttum færin mjög illa hins vegar og náðum bara að skora eitt mark. Leiknir F. náði bara þrem sóknum sem enduðu með skoti og endaði leikurinn 3-1 fyrir Leikni F. What the fuck?! Svona getur fótboltinn verið, og ætla ég ekki að segja að þetta hafi verið ósanngjarnt því við vorum lélegir að nýta það sem við fengum. Damn you Jói og Egill! =p (Egill skoraði 2 btw)

Fín helgi samt, hörku fjör. Ég náði að gera allt sem mér finnst skemmtilegast að gera. Hanga með vinum, spila fótbolta, drekka bjór, hitta konur og hanga í tölvunni. Topp helgi sem maður verður að endurtaka enhverntíman seinna. Ekki strax samt =) maður var alveg búinn á því. Vil nota tækifærið og þakka strákunum fyrir klassahelgi! Yo, respect.

p.s. Ný könnun!
Ace Johnson
14 athugasemdir

Last days.. Football, Health 'n Movies.

21. mars 2007 klukkan 11:09
Fótbolti!Jæjah! Núna kemur gömul klísja á bloggsíðum. "OMG dáltið langt síðan ég bloggaði!!! Soz!" ... Mér GÆTI ekki verið meira sama hversu aktívur bloggari ég er! "I write whenever I fucking feel like it!!" og hananú. Ykkur er samt velkomið að reka á eftir mér =P

En já, Ási lifir þessa dagana hálfgerðu hollustulífi. Ekkert djamm síðustu tvær helgarnar, maður hefur nú samt fengið sér bjór, en varla fundið á sér samt. Nújáh! Ég fór sem sagt austur á Reyðarfjörð að keppa um síðustu helgi við Hött Egilstöðum. Var spilað í Fjarðarbyggðarhöllinni sem er glæsilegt mannvirki. Það sökkaði samt! Allir voru rosa hressir og ætluðu sér að vinna leikinn en svo þegar leikurinn byrjaði gerðum við ekki neitt! 3-0 í hálfleik fyrir Hetti. Svo í seinni hálfleik vöknuðum við aðeins, en það dugði ekki til og endaði þetta 4-1. Þjálfarinn var ekki sáttur. Svo á leiðinni heim kom líka þetta skíta veður og töfðumst við um klukkutíma eða svo. Ég var kominn inná akureyri c.a. 23:30.

Planið var að djamma eftir leik! Allt að gerast sko. Þórhallur kominn til landsins, Jói ætlaði að kýkja í heimsókn á akureyri og Jón Þór er nú pro djammari. Svo kom Kolli norður líka og bara allir!¨Party! Ég talaði við strákana og var planið að drekka nokkra bjóra hérna heima áður en haldið væri niðrí bæ. En neeei! Allir hættu við. Þórhallur nennti ekki inná ak í skíta veðrinu. Jóni Þór vantaði gistingu, far heim daginn eftir, og leist ekkert á veðrið heldur. Jói hætti líka við! og Kolli fór allt í einu á Laugar bara.. Og Ási bara aleinn í íbúðinni með einn öl, sem hann svo drapst útaf vegna þreytu! Jamm, sofnaði bara snemma, og kannski bara gott.

Vaknaði kl. 12 um hádegi á Sunnudag, borðaði "morgunmat" og fór til Svenna að horfa á Aston Villa - Liverpool. Þessi leikur reyndist síðan vera einn leiðinlegasti leikur sem ég hef séð með Liverpool..

Maður þykist eiga mikinn frítíma og hef ég verið að eyða þeim tíma í að horfa á bíómyndir. Núna á síðustu vikum hef ég séð eftirtaldar:

The Departed - Alveg hreint mögnuð mynd, frábærir leikarar og ótrúlega töff plot. Veit um suma sem eru ekki mikið hrifnir af endinum á myndinni sem er dáltið sérstakur reyndar. En í heild sinni er þetta ein af betri myndum sem ég hef séð. Kaupi hana pott þétt á DVD þegar færi gefst. **** 4 stjörnur

300 - Fór á þessa í bíó, reyndar frumsýningu hérna á Akureyri. Þetta er ekkert smá töff mynd. Þegar myndir eru töff, þá þurfa þær ekkert endilega að vera í miklum gæðaflokki. Ég skemmti mér konunglega og það var húmor í henni líka. Leikararnir voru nú ekkert uppá marga fiska, og Hollywood áhrifin gríðarleg. Samt, náði hún engan vegin að fara í taugarnar á mér eins og svo margar Hollywood klisjur. *** 3 stjörnur

Cars - Ógisslega krúttleg Disney mynd frá Pixar! Með þeim betri verð ég að segja. Ég skellihló á köflum þegar ég horfði á þessa. Snilldarstykki frá Pixar. Fannst samt Owen Wilson ekki alveg passa í hlutverk aðalpersónunnar (aðalbílsins). Atriðið með Ferrari-inum var alger snilld. Djöfull hló ég! =) *** 3 stjörnur

Yah! Marr' er alltaf í hollustunni sko, étandi appelsínur, fisk, lýsi og eitthvað. Ásamt þessu hreyfir maður sig reglulega og mikið. Ég hljóp í gær 7 km á 30 mín, sem er kannski ekkert rosalegt, en mér fannt magnað hvað ég var lítið þreyttur eftir það. Ég hef aldrei verið í svona góðu formi áður og mér líður svo geðveikt vel líkamlega! Æðisleg snilld! En va´.. stundum langar mig í sígó.. sérstaklega þegar ég er búinn að borða vel eða ér að fá mér öl. Það er svo gott að reykja, en það er bara ekki fræðilegur séns að ég myndi byrja aftur. Ég vil alls ekki glata því sem ég hef í dag.

Út í aðra sálma. Kolli var alltaf drekkandi 'Egils Malt' þegar hann bjó hérna líka, og núna er ég orðinn "hooked" á því líka, it's so tasty! Æi vá, nenni ekki að skrifa meira og ætla að fá mér lúr!

bleble.

p.s. Þórhallur, bjórinn þinn sem þú ert að geyma hérna er að verða búinn.. kaupi bara nýja kippu við tækifæri. kk?

ZzZzzzz...


Ace Johnson
10 athugasemdir

Slímugt Blóđ, Útvarpsmenning og Appelsínur.

12. mars 2007 klukkan 22:10
Appelsínur!Jáh, djöfull eru appelsínur geðveikt góðar! Og ódýrar! Ég er byrjaður að hafa það að föstum lið að éta þær eingöngu í kvöldmatinn. Öss, bara snilld. Appelsínur eiga rætur sínar að rekja til Asíu en í dag eru það brasilíumenn sem eru duglegastir að rækta þær. Appelsínur eru appelsínugular á litin (duh) og smá svona súr keimur af þeim, æi þið vitið. En jáh, sem sagt kærasti systur minnar er sá eini sem ég veit um sem étur börkinn líka utan af appelsínum. Þar hafiði það.

Núna þegar maður er orðinn akureyringur og keyrir sig á milli í skólann og á æfingar þarf maður náttlega að hlusta á tónlist á meðan sko. Þessi útvarpsmenning hérna á landi er nú meira sorpið! og nánast ekkert fyrir minn smekk til að hlusta á. Núh! ég er nú samt búinn að "save"-a nokkrar stöðvar í útvarpið á bílnum, og hljóðar sá listi svona:

1. X-ið Þessi stöð er að mínu mati lang best af því sem Akureyrin hefur uppá að bjóða. Rokk, flott techno, og fótboltaumræður! Er líka að fíla slagorðið þeirra. "X-ið, því allt annað er viðurstyggð.." Heh, en já. Flott stöð nema allt of mikið af auglýsingum, en það er náttlega eitthvað sem allar útvarpstöðvar hafa.

2. FM 957 Ég verð nú að segja að þessi stöð hefur hækkað í áliiti hjá mér. Ekki af því að tónlistin hefur skánað, bara útaf því að það er nánast allt leiðinlegra! Svo á þessi stöð til að koma með ágætis lög inná milli, eins og Mika-lagið og þarna My Chemical Romance lagið. Þessi tvö eru fín. En vá hvað ég þoli ekki rapp og dillipíku sorptónlist. Og auglýsingarnar, þær eru sagðar svo hratt að maður fær bara hausverk og verður óglatt. Þá eru nú auglýsingarnar hjá þeirri gömlu á Rás 1 betri... og stefið hjá þeim vá.. "Eff emm níu FIMM SJÖÖÖÖ" YAY! ARGH. Annars er þátturinn Súper (held að hann heiti það) nokkuð fínn á morgnanna þegar maður er á leiðinni skólann. Yus.

3. Voice FM Ekki ósvipuð stöð og FM 957 "as far as I know" Ef ekki meira drasl. Hlusta eiginlega aldrei á hana.

4. Léttbylgjan Guð minn góður sko. Agalega væmin tónlist allann sólarhringinn. Detta þó einu sinni á tveim tímum inn ágætis chill lög. Alger viðbjóðsstöð samt.

5. Bylgjan Þessi stöð er náttlega klassísk í gæðum. Fín lög, allskonar tónlist. Allt of allt of mikið af íslenskri tónlist samt. -Ég- fíla eiginlega ekkert íslenskt. Bara Sigur Rós og kannski Trabant lagið nýja. Nokkur Mínus lög líka. En vá. Land og synir, Skímó... ég gæti grátið. Bó Hall! eugh..

6. Rás 2 Fín stöð. Er ekki mikið fyrir það að hlusta á fréttir samt, og þó. Þeir spila nánast allt og þar að leiðandi fullt af sorpi. Samt fín lög inná milli. Hressandi gömul lög og stöff. En jáh!

Go X-ið og geislaspilarinn minn!

Áður en ég fer útí slímuga blóðið verð ég að segja ykkur frá pynntingameistaranum. Ok, ímyndið ykkur stóran, frekar feitan, nei. Breiðan skeggjaðan, fimmtugan júdókall. Þessi gaur verður fúll ef enginn ælir á meðan eða eftir tíma hjá honum. Síðast þegar liðið fór í tíma hjá honum, ældi einn og tveir fóru heim eftir korter. Þetta var líka alger viðbjóður.

Klukkutími. Ég hélt að ég yrði ekki eldri, non-stop, óvenjulegar og furðulega erfiðar æfingar trekk í trekk. Sprettir, hopp, armbeyjur, liðleika- og snerpuæfingar. Ég var að hníga niður þegar gaurinn sagði, "jæjah.. korter búinn piltar mínir, koma svo" Sem betur fer var það erfiðasta gert fyrst og maður rétt hafði sig í gegnum þetta. Hann varð hundfúll því enginn gafst upp og sagðist ætla að hafa þetta miklu erfiðara í næstu viku.. Jújú það er búið að bóka liðið í þetta vikulega framm í mái...

En jáh, fyrir 2. vikum síðan fékk ég tvennskonar meiðsl á þriðjudagsæfingunni þá. Það var mjög kallt og snjór úti. Fótboltaskór eru ekki mjög vel einangraðir og einnig eru mínir frekar þröngir. Kuldi hægir á blóðflæði og þröngir skor líka. Ég dofnaði í löppunum og gerði mér ekki grein fyrir höggunum sem dundu á mér á æfingunni. Þegar ég kom heim voru neglur stóru tánna svartar. Þessi svarti litur var einfaldlega blóð. Ég til læknis þarsíðasta föstudag. Læknirinn sagði að ég hefði fengið mörg öflug högg á tærnar og öklinn væri undir miklu álagi vegna of mikilla æfinga. Álagsmeiðsl svokölluð.

Now, about the blood. Ekki fyrir viðkvæma að lesa. Punktur. Áður en ég fór til pynntingameistarans klippti ég neglurnar. Bam, losnaði þrýstingur sem blæðingin hafði myndað. Svart, slímugt blóð lak undan nöglinni. Ég sagði upphátt "Ojj maður, viiiðbjóður!" við sjálfan mig. Þetta blóð var eins og lím við viðkomu og ekki nóg með það. Nöglin er laus... Jáh, gaman að þessu.

Held að ég sé búinn að skrifa nóg núna.. "High Five!" and Chao!
Ace Johnson
8 athugasemdir

Djammlaus Helgi!

12. mars 2007 klukkan 12:28
What the hell?! Why isn't Ace partyin'?! This is an outrage!

Já mar, bara djammlaus helgi og ekki sú fyrsta heldur síðan um áramót. Þessar djammlausu helgar eru orðnar fjórar! Af hverju? Ég er bara komin með nett leið á því að djamma. Þetta er bæði dýrt, óhollt og ef maður djammar sjaldnar, þá verður hvert skipti skemmtilegra. Annars fékk ég mér nokkra bjóra, bara heima yfir sjónvarpinu. Það var nice.

 
Champion's League Trophy
Fótbolti, fótbolti, fótbolti. Ég var á æfingu á Mánudag, Þriðjudag, Miðvikudag, Fimmtudag, Föstudag, í gær og pynntingarmeistarinn í kvöld. Mig er byrjað að dreyma fótbolta og hugsanlega er það boltinn sem fær mann til að djamma minna. Maður vill ekki skemma formið sem hefur fengist með æfingum vikunnar. Ekkert nema gott um það að segja held ég. Engir timburmenn!

Liverpool komust áfram í Meistaradeildinni yay! Unnu núverandi Evrópumeistara Barcelona í 16 liða úrslitum, bara snilld. 8 liða úrslitin hljóða svona:

Milan - Bayern
PSV - Liverpool
Roma - Man.Utd.
Chelsea - Valencia

Ég spái þessu!


AC Milan
                                 Bayern Munchen
Bayern Munchen

                                                            
Man.Utd.
Roma
                                 Man. Utd.
Man. Utd.
                                                                      
                                                                      V.S.

PSV
                                 Liverpool
Liverpool
                                                            
Liverpool
Chelsea
                         Valencia
Valencia



Sem sagt vona ég að erkifjendurnir lendi saman í úrslitum. Það yrði náttúrulega alveg hrikalegt að tapa þeim leik en þvílík snilld yrði það að vinna hann. Einmitt Jæjah, ég þarf að hunskast í skólann núna. Chao!
Ace Johnson
4 athugasemdir

Snilld + Hugleiđingar

08. mars 2007 klukkan 00:35
Jáh, í dag er maður sáttur með sína menn í boltanum. Liverpool búnir að slá út besta félagslið heims útúr Meistaradeild Evrópu!. Ég horfði á leikinn á All-anum og voru þar einnig Svenni, Ingólfur og Palli. Hörku stemmari og örugglega yfir 100 manns að horfa. Eiður Smári skoraði eina markið í leiknum þegar 15 mínútur voru eftir en það nægði ekki fyrir Barca til að komast áfram. Grand!

Ég sakna smá Ölla og Kolla *sniff* Þeir eru báðir fluttir til Reykjavíkur og Ási bara einn í íbúðinni. Það er reyndar ágætt að vera einn stundum. Maður getur ruslað til eins og maður vill og labbað um nakinn og svona. Ýmsir sniðugir kostir. Annars var ég að spá í að taka til bráðum. Hef nú ekki mikið að segja núna. Er bara í skólanum og alltaf í boltanum. Gjöriði svo vel að tékka á tónlistinni sem ég hlusta á þessa dagana! Below!


Moby - Porcelain
NIN - Right Where It Belongs
The Prodigy - Voodoo People (Pendulum Remix)
The Servant - Cells
The Verve - Bittersweet Symphony

Það virðist vera svo auðvelt að hafa áhrif á mig.. Ég sé eitthvað, og mig langar bara meira en allt í það. Og bara kaupi það ef ég get! Stundum eru hlutir að fara inní hausinn á mér sem er svo ótrúlega óraunhæfir að það er nánast bara djók.

Sumar bíómyndir hafa gríðarleg áhrif á mig líka og sérstaklega ein sem ég sá um daginn. Ég mæli með ef þið fáu sem lesa þessa síður og hafið ekki séð þessa mynd, horfið á hana. Hún heitir "The Beach" og aðalhlutverkið er leikið af Leonardo DiCaprio. Ég er ennþá undir einhverjum undarlegum áhrifum eftir að hafa séð þessa mynd.

Comment úr myndinni: "Never refuse an invitation, never resist the unfamiliar, never cease to be polite, and never outstay your welcome"

Þetta þýðir c.a. "Ekki neita tækifærum, forðastu ekki það ókunna, aldrei hætta að vera kurteis, og
ofnotaðu aldrei gestrisni"

Mér finnst mikið til í þessu. Það eru svo ótrúlega margir sem bara verða hafa allt öruggt í kringum sig og er hræddir við að prufa eitthvað nýtt. Sjálfur er ég nú ekki andstæðan alltaf.

Það er hollt að hafa áhyggjur.

Ási sofa núna, ætla setja Moby á, fara undir teppið mitt, og sofna, áhyggjulaus.
Ace Johnson
4 athugasemdir