Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstađa: Single
  • Um mig: Ég er fćddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annađ: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríiđ

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburđir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Slímugt Blóđ, Útvarpsmenning og Appelsínur.

12. mars 2007 klukkan 22:10
Appelsínur!Jáh, djöfull eru appelsínur geðveikt góðar! Og ódýrar! Ég er byrjaður að hafa það að föstum lið að éta þær eingöngu í kvöldmatinn. Öss, bara snilld. Appelsínur eiga rætur sínar að rekja til Asíu en í dag eru það brasilíumenn sem eru duglegastir að rækta þær. Appelsínur eru appelsínugular á litin (duh) og smá svona súr keimur af þeim, æi þið vitið. En jáh, sem sagt kærasti systur minnar er sá eini sem ég veit um sem étur börkinn líka utan af appelsínum. Þar hafiði það.

Núna þegar maður er orðinn akureyringur og keyrir sig á milli í skólann og á æfingar þarf maður náttlega að hlusta á tónlist á meðan sko. Þessi útvarpsmenning hérna á landi er nú meira sorpið! og nánast ekkert fyrir minn smekk til að hlusta á. Núh! ég er nú samt búinn að "save"-a nokkrar stöðvar í útvarpið á bílnum, og hljóðar sá listi svona:

1. X-ið Þessi stöð er að mínu mati lang best af því sem Akureyrin hefur uppá að bjóða. Rokk, flott techno, og fótboltaumræður! Er líka að fíla slagorðið þeirra. "X-ið, því allt annað er viðurstyggð.." Heh, en já. Flott stöð nema allt of mikið af auglýsingum, en það er náttlega eitthvað sem allar útvarpstöðvar hafa.

2. FM 957 Ég verð nú að segja að þessi stöð hefur hækkað í áliiti hjá mér. Ekki af því að tónlistin hefur skánað, bara útaf því að það er nánast allt leiðinlegra! Svo á þessi stöð til að koma með ágætis lög inná milli, eins og Mika-lagið og þarna My Chemical Romance lagið. Þessi tvö eru fín. En vá hvað ég þoli ekki rapp og dillipíku sorptónlist. Og auglýsingarnar, þær eru sagðar svo hratt að maður fær bara hausverk og verður óglatt. Þá eru nú auglýsingarnar hjá þeirri gömlu á Rás 1 betri... og stefið hjá þeim vá.. "Eff emm níu FIMM SJÖÖÖÖ" YAY! ARGH. Annars er þátturinn Súper (held að hann heiti það) nokkuð fínn á morgnanna þegar maður er á leiðinni skólann. Yus.

3. Voice FM Ekki ósvipuð stöð og FM 957 "as far as I know" Ef ekki meira drasl. Hlusta eiginlega aldrei á hana.

4. Léttbylgjan Guð minn góður sko. Agalega væmin tónlist allann sólarhringinn. Detta þó einu sinni á tveim tímum inn ágætis chill lög. Alger viðbjóðsstöð samt.

5. Bylgjan Þessi stöð er náttlega klassísk í gæðum. Fín lög, allskonar tónlist. Allt of allt of mikið af íslenskri tónlist samt. -Ég- fíla eiginlega ekkert íslenskt. Bara Sigur Rós og kannski Trabant lagið nýja. Nokkur Mínus lög líka. En vá. Land og synir, Skímó... ég gæti grátið. Bó Hall! eugh..

6. Rás 2 Fín stöð. Er ekki mikið fyrir það að hlusta á fréttir samt, og þó. Þeir spila nánast allt og þar að leiðandi fullt af sorpi. Samt fín lög inná milli. Hressandi gömul lög og stöff. En jáh!

Go X-ið og geislaspilarinn minn!

Áður en ég fer útí slímuga blóðið verð ég að segja ykkur frá pynntingameistaranum. Ok, ímyndið ykkur stóran, frekar feitan, nei. Breiðan skeggjaðan, fimmtugan júdókall. Þessi gaur verður fúll ef enginn ælir á meðan eða eftir tíma hjá honum. Síðast þegar liðið fór í tíma hjá honum, ældi einn og tveir fóru heim eftir korter. Þetta var líka alger viðbjóður.

Klukkutími. Ég hélt að ég yrði ekki eldri, non-stop, óvenjulegar og furðulega erfiðar æfingar trekk í trekk. Sprettir, hopp, armbeyjur, liðleika- og snerpuæfingar. Ég var að hníga niður þegar gaurinn sagði, "jæjah.. korter búinn piltar mínir, koma svo" Sem betur fer var það erfiðasta gert fyrst og maður rétt hafði sig í gegnum þetta. Hann varð hundfúll því enginn gafst upp og sagðist ætla að hafa þetta miklu erfiðara í næstu viku.. Jújú það er búið að bóka liðið í þetta vikulega framm í mái...

En jáh, fyrir 2. vikum síðan fékk ég tvennskonar meiðsl á þriðjudagsæfingunni þá. Það var mjög kallt og snjór úti. Fótboltaskór eru ekki mjög vel einangraðir og einnig eru mínir frekar þröngir. Kuldi hægir á blóðflæði og þröngir skor líka. Ég dofnaði í löppunum og gerði mér ekki grein fyrir höggunum sem dundu á mér á æfingunni. Þegar ég kom heim voru neglur stóru tánna svartar. Þessi svarti litur var einfaldlega blóð. Ég til læknis þarsíðasta föstudag. Læknirinn sagði að ég hefði fengið mörg öflug högg á tærnar og öklinn væri undir miklu álagi vegna of mikilla æfinga. Álagsmeiðsl svokölluð.

Now, about the blood. Ekki fyrir viðkvæma að lesa. Punktur. Áður en ég fór til pynntingameistarans klippti ég neglurnar. Bam, losnaði þrýstingur sem blæðingin hafði myndað. Svart, slímugt blóð lak undan nöglinni. Ég sagði upphátt "Ojj maður, viiiðbjóður!" við sjálfan mig. Þetta blóð var eins og lím við viðkomu og ekki nóg með það. Nöglin er laus... Jáh, gaman að þessu.

Held að ég sé búinn að skrifa nóg núna.. "High Five!" and Chao!
Ace Johnson
Flott blogg Ási og skemmtilegt að lesa álit þitt á útvarps-sorpinu hérna á þessu landi..sammála um x-ið, það er einna skárst=/ Annars toppar ekkert einhvern über disk í spilaranum

En hvað segiru, bolti aftur á morgun eða? í höllinni?
I love appelsíns >=)
13. mars 2007 klukkan 16:08
Það er hugsanlegt að ég geti komið í bolta jamm. Ef það er í boði, veistu eitthvað um það?
13. mars 2007 klukkan 16:32
hey fm957 er töff, það er að gefa pening og alles... !
13. mars 2007 klukkan 22:46
Neih, Ási kemst ekki, fer á æfingu á morgun og svo vinna kl 6..damn

Uhh..Tinna sko!! þú hérna...ert töff
13. mars 2007 klukkan 23:20
jamm sammála með útvarpsstöðvarnar... Xið er snilld... og restin ekki mönnum bjóðandi. Og talandi um þetta Mika-lag þá hata ég það útaf lífinu þar sem ég heyrði það í svona 700. skipti í dag, samt á ég það ekki í tölvunni minni... það er bara ofspilað eins og allt annað sem nær vinsældum. bjakk...

en já ég er reyndar svolítið efins um appelsínur, ég hata að taka utan af appelsínum, því ef maður gerir það, þá lyktar maður eins og appelsína það sem eftir er dagsins... sama þó maður þvoi sér um hendurnar... það er pirrandi... slæmt þvi appelsínur eru mjög góðar á bragðið.

og ef þig vantar eh tíma eh í bolta þá er ég ALLTAF game ;)
15. mars 2007 klukkan 21:34
Hah! Ég tek þig á orðinu Rakel. Næst þegar ég fer í miðvikudagsbolta, þá hringi ég í þig. Ertu nokkuð á æfingum á miðvikudögum?

Annars er ég alveg sammála þér með Mika-lagið. Það er búið að nauðga því rosalega. Ég þurfti að hlusta á það svona 15 sinnum á dag þegar Ölli og Kolli voru hérna ennþá. Ölli raped it!

Go Oranges! Yay!
15. mars 2007 klukkan 23:34
já þetta er svakalega fallegt blogg. Mér finnst allar þessar útvarpsstöðvar ógeðslega lélegar.... maður getur ekki kveikt á útvarpinu án þess að heyra einhvern ríkann hvítann krakkaorm syngja hástöfum um það hvað lífið hans er erfitt... fucking emo kids... svo má nú tala aðeins um appelsínur en þær komu einmitt til íslands frá kína og voru menn hissa á þessum skrítna ávöxt og var þetta kallað "apples from china" sem varð svo að applechina eða appelsína...

eða það las ég einhversstaðar :P
19. mars 2007 klukkan 11:23
Ég hlusta alltaf á FlassFM
22. mars 2007 klukkan 12:32

Skrifa athugasemd