Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstaða: Single
  • Um mig: Ég er fæddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annað: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríið

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburðir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Last days.. Football, Health 'n Movies.

21. mars 2007 klukkan 11:09
Fótbolti!Jæjah! Núna kemur gömul klísja á bloggsíðum. "OMG dáltið langt síðan ég bloggaði!!! Soz!" ... Mér GÆTI ekki verið meira sama hversu aktívur bloggari ég er! "I write whenever I fucking feel like it!!" og hananú. Ykkur er samt velkomið að reka á eftir mér =P

En já, Ási lifir þessa dagana hálfgerðu hollustulífi. Ekkert djamm síðustu tvær helgarnar, maður hefur nú samt fengið sér bjór, en varla fundið á sér samt. Nújáh! Ég fór sem sagt austur á Reyðarfjörð að keppa um síðustu helgi við Hött Egilstöðum. Var spilað í Fjarðarbyggðarhöllinni sem er glæsilegt mannvirki. Það sökkaði samt! Allir voru rosa hressir og ætluðu sér að vinna leikinn en svo þegar leikurinn byrjaði gerðum við ekki neitt! 3-0 í hálfleik fyrir Hetti. Svo í seinni hálfleik vöknuðum við aðeins, en það dugði ekki til og endaði þetta 4-1. Þjálfarinn var ekki sáttur. Svo á leiðinni heim kom líka þetta skíta veður og töfðumst við um klukkutíma eða svo. Ég var kominn inná akureyri c.a. 23:30.

Planið var að djamma eftir leik! Allt að gerast sko. Þórhallur kominn til landsins, Jói ætlaði að kýkja í heimsókn á akureyri og Jón Þór er nú pro djammari. Svo kom Kolli norður líka og bara allir!¨Party! Ég talaði við strákana og var planið að drekka nokkra bjóra hérna heima áður en haldið væri niðrí bæ. En neeei! Allir hættu við. Þórhallur nennti ekki inná ak í skíta veðrinu. Jóni Þór vantaði gistingu, far heim daginn eftir, og leist ekkert á veðrið heldur. Jói hætti líka við! og Kolli fór allt í einu á Laugar bara.. Og Ási bara aleinn í íbúðinni með einn öl, sem hann svo drapst útaf vegna þreytu! Jamm, sofnaði bara snemma, og kannski bara gott.

Vaknaði kl. 12 um hádegi á Sunnudag, borðaði "morgunmat" og fór til Svenna að horfa á Aston Villa - Liverpool. Þessi leikur reyndist síðan vera einn leiðinlegasti leikur sem ég hef séð með Liverpool..

Maður þykist eiga mikinn frítíma og hef ég verið að eyða þeim tíma í að horfa á bíómyndir. Núna á síðustu vikum hef ég séð eftirtaldar:

The Departed - Alveg hreint mögnuð mynd, frábærir leikarar og ótrúlega töff plot. Veit um suma sem eru ekki mikið hrifnir af endinum á myndinni sem er dáltið sérstakur reyndar. En í heild sinni er þetta ein af betri myndum sem ég hef séð. Kaupi hana pott þétt á DVD þegar færi gefst. **** 4 stjörnur

300 - Fór á þessa í bíó, reyndar frumsýningu hérna á Akureyri. Þetta er ekkert smá töff mynd. Þegar myndir eru töff, þá þurfa þær ekkert endilega að vera í miklum gæðaflokki. Ég skemmti mér konunglega og það var húmor í henni líka. Leikararnir voru nú ekkert uppá marga fiska, og Hollywood áhrifin gríðarleg. Samt, náði hún engan vegin að fara í taugarnar á mér eins og svo margar Hollywood klisjur. *** 3 stjörnur

Cars - Ógisslega krúttleg Disney mynd frá Pixar! Með þeim betri verð ég að segja. Ég skellihló á köflum þegar ég horfði á þessa. Snilldarstykki frá Pixar. Fannst samt Owen Wilson ekki alveg passa í hlutverk aðalpersónunnar (aðalbílsins). Atriðið með Ferrari-inum var alger snilld. Djöfull hló ég! =) *** 3 stjörnur

Yah! Marr' er alltaf í hollustunni sko, étandi appelsínur, fisk, lýsi og eitthvað. Ásamt þessu hreyfir maður sig reglulega og mikið. Ég hljóp í gær 7 km á 30 mín, sem er kannski ekkert rosalegt, en mér fannt magnað hvað ég var lítið þreyttur eftir það. Ég hef aldrei verið í svona góðu formi áður og mér líður svo geðveikt vel líkamlega! Æðisleg snilld! En va´.. stundum langar mig í sígó.. sérstaklega þegar ég er búinn að borða vel eða ér að fá mér öl. Það er svo gott að reykja, en það er bara ekki fræðilegur séns að ég myndi byrja aftur. Ég vil alls ekki glata því sem ég hef í dag.

Út í aðra sálma. Kolli var alltaf drekkandi 'Egils Malt' þegar hann bjó hérna líka, og núna er ég orðinn "hooked" á því líka, it's so tasty! Æi vá, nenni ekki að skrifa meira og ætla að fá mér lúr!

bleble.

p.s. Þórhallur, bjórinn þinn sem þú ert að geyma hérna er að verða búinn.. kaupi bara nýja kippu við tækifæri. kk?

ZzZzzzz...


Ace Johnson
fjárans var búin að skrifa mjög skemmtilegt komment, en netið hjá mér er fáránlegt drasl og það datt út ÁKKURAT þegar ég var búin að ýta á "senda". Þetta er náttúrulega ekki ásættanlegt

EEn það sem ég vildi sagt hafa var að ég er sammála með að Cars sé krúttleg... sérstaklega litli ítalski bíllinn sem skipti um dekk...

hey horfiru ekki á Heroes? fáranlega krúttlegur annar kínverski gæjinn, Hiro, sá sem getur stoppað tímann.

kv hinriks
21. mars 2007 klukkan 18:12
Kolli
 
Malt er gott, líka ódýrara en bjór
21. mars 2007 klukkan 20:11
fanney
 
tjáá ási..jei...hmm hmm hmm..það er naumast heilsulífið..þú ert að verða heilsusamlegri en ég..og þá er nú mikið sagt...hmmmmmmmm.....eeeeeeeeeeeeeennnnn já ég sé þig þá kannski á djamminu ef þú getur skilið appelsínurnar eftir einar heima híhíhí
21. mars 2007 klukkan 22:22
Þórhallur
 
Já er það ekki! Kolli viðurkenndi reyndar að hafa stolið einum.

(eru ekki vextir á þessu? :)
21. mars 2007 klukkan 22:29
Ási, þetta var ekki skokk eða hlaup eða hvað sem þú sagðir sko!...
22. mars 2007 klukkan 00:32
Rakel, Æh, þoli ekki þegar þetta gerist og sem betur fer sjaldan í minni tölvu. Samt stundum og þá bankar maður hnefanum í tölvuborðið.

Litli ítalski viðgerðarbíllinn í 'Cars' er svo ógeðslega mikið krútt! Argh =P Hins vegar horfi ég aldrei á sjónvarp, og þar með ekki á heroes. =/

Kolli, Malt doesn't beat beer though >=)

Fanney, Jáh. Þessar blessuðu appelsínur geta nú beðið heima =P Veit samt ekki með djamm um næstu helgi, leikur á Sunnudegi..

Þórhallur, Við sjáum til með vextina, þú færð allavega nýja kyppu! ef þú beilar ekki á mér aftur!

Svenni, Í hvaða hreyfingarflokk myndir þú setja þetta þá? =)


Takk kærlega fyrir commentin! x *Highfive!*
22. mars 2007 klukkan 01:11
horfiru ekki á sjónvarp??? ég vel mér bara svona þætti sem mér finnst skemmtilegir, og horfi svo BARA á þá... t.d. Heroes og O.C. .... reyni líka að ná House á fimmtudögum :) það er svo gaman að vera fastur í eh svona seríum, þá hlakkar mann svo til að sjá næsta þátt ... þetta gefur lífinu gildi ... hehehhe djók farin að hljóma eins og þunglyndissjúklingur :D

ALLAVEGA, nú er ég bara að fara til Portúgal á morgun í fótboltaferð JEJEEJJEJE sjitt get ekki beðið eftir að fara að spila bolta Á GRASI í sól og hita ... nammmmmmm !!

við heyrumst gamli! gangi þér vel að keppa um helgina!
23. mars 2007 klukkan 19:47
ps. ég DÝRKA Pétur Ben!!! snillingur
23. mars 2007 klukkan 19:48
Blessaður Ási

sammála þér að The Departed verði skyldueign á dvd, en hvernig er það með þig á ekki að kíkja á kelduna, Muse búnir að skrá sig og svona, joina mann hérna í Danaveldinu. Bara hugmynd

Síðan máttu alveg skoða þann möguleika að adda mér á msn kallpungur......
24. mars 2007 klukkan 11:38
Rakel! Eh, neibb. Horfi ekkert á sjónvarp eiginlega. Kemur fyrir að maður horfir á eitthvað downloadað eins og Lost, Southpark og Friends =) Ég er samt að spá í að kýkja á þessa Heroes þætti.

Portúgal! Ojj þér! >=/

Eyþór! Blessarr marr! Langt síðan maður hefur heyrt í þér. Ég mun kýkja á síðuna þína reglulega hér eftir =) Búinn að adda þér á msn.
24. mars 2007 klukkan 15:16

Skrifa athugasemd