Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Stađur: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstađa: Single
  • Um mig: Ég er fćddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annađ: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríiđ

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburđir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

What a Weekend.. Beer, Women.. Football 'n Pizza!

26. mars 2007 klukkan 12:24
Miller Time!Jahérna hér.. Þessi helgi var rosaleg! Hún var ekki ósvipuð og síðasta helgi átti að vera. Jói kallinn kom í heimsókn en hann átti að keppa í fótbolta á sunnudeginum, og einmitt við liðið mitt Magna. Hann ákváð því að taka forskot á sæluna og kýkja á Akureyri strax á föstudeginum. Ég bauð honum bara gistingu enda nóg pláss! Svo kom Þórhallur líka, og þurfti hann náttúrulega gistingu líka. Ekki málið! Nóg pláss!

Eftir fótboltaæfinguna mína á föstudeginum pöntuðum við (Ég, Jói og Þórhallur) pizzu frá Greifanum. Svo hringdi mar náttlega í Jón Þór sko, aðeins að tékka á kallinum, hvort hann nennti ekki að kýkja aðeins á djammið. Hann bara "jújú, vantar reyndar gistingu sko" Ég get nú reddað því kallinn minn sagði ég. Plássið virtist endalaust þegar maður var búinn með nokkra bjóra. Sjálfur er ég í alveg magnað lélegu bjórþambsformi og þarf maður ekki mikið þessa dagana. Sem er gott!

Svo var bara setið heima í chillinu, bjór drukkin, pizza étin, og horft á myndbönd og hlustað á tónlist í tölvunni, happy times! En jáh, svo kom Jón Þór seinna um kvöldið, og svo tókum við bara Taxa niðrí bæ og fórum við fyrst á Kaffi Ak. Þar hittum við fullt af fólki, Sandra, Sólveig, Árni Rúnar og fleiri voru þar t.d. Ég var nú ekkert mjög duglegur í drykkjunni, enda leikur á sunnudag. Var bara rólegur.

Eftir að hafa verið á Kaffi Ak um stund fórum við Jói á Amour og svo hittum við Jón Þór og Þórhall á Capone eftir það. Alveg merkilegt hvað Capone hefur farið hamförum, þetta er orðinn ótrúlega vinsæll staður og ekkert nema gott um það að segja. Mar fékk sér smá sambúkka og mikið fjör. Tikk Takk, Taxi, heim! eða c.a. þannig. Great Success!

Laugardagur! Jón Þór fór á Lauga, Jóhann sofandi og Þórhallur nývaknaður og "hress". Það er svo mikil snilld að eiga kalda pizzu frá deginum áður. <3

Þórhallur fór heim líka fljótlega eftir hádegið. Ég og Jói fórum út að skokka til að hressa okkur við, fórum svo í pottinn og gufu eftir á. Djöfull var það nice. Meiri pizza, étin, meiri tónlist, tölvuslór, og mar fór í letigírinn. Ég og Jói vorum eiginlega búnir að ákveða það, að fara ekki út að djamma á laugardagskvöldinu, Sálin í Sjallanum.. og allir á djamminu! ...

Við fengum okkur Miller eða tvo heima, ýkt fúlir eitthvað. Svo fórum við bara í Sjallann =P Nenntum þessu ekki. 2500 kr. takk. Djöfulsins okur, en þetta var nánast þess virði. Maður hitti fullt af kunningjum í Sjallanum eins og venjulega. Því miður hitti ég Lárus, og eftir það sá maður aðeins eftir 2500 kallinum =P Vá! Verð eiginlega að segja ykkur frá gömlu gellunni.. díses maður.

Ég og Jói fengum okkur sæti, uppi í Sjallanum. Kemur ekki þessi gamla jússa. Hún var nú ekkert ómyndarleg en þúst líklega í kringum fertugt, með tattú og alles. Við ekki alveg að meika hana eftir smá tíma og sögðumst ætla á klósettið. Hún bara "Já okei" og byrjaði að leiða Jóa =) Haha, djöfull var það fyndið. Við sögðum "Heyrðu, við komum eftir smá, vertu hérna eftir tíu mínútur okei?" Svo hlupum við niður! Jáhh, þetta var rosalegt.

Fín skemmtun samt og fjör í Sjallanum. Tikk Takk, Taxi (eða einhver vinkona Jóa sem var á bil) og heim! Jibbí!

FootballSunnudagur! Vöknuðum, fórum út í Samkaup Strax og fengum okkur smá morgunmat og hresstum okkur aðeins við úti á sparkvelli. Leikurinn byrjaði kl. 16:15 og sökkaði hann feitt (fyrir mitt lið!) Magni líklega í betra formi og vorum við miklu meira með boltann. Nýttum færin mjög illa hins vegar og náðum bara að skora eitt mark. Leiknir F. náði bara þrem sóknum sem enduðu með skoti og endaði leikurinn 3-1 fyrir Leikni F. What the fuck?! Svona getur fótboltinn verið, og ætla ég ekki að segja að þetta hafi verið ósanngjarnt því við vorum lélegir að nýta það sem við fengum. Damn you Jói og Egill! =p (Egill skoraði 2 btw)

Fín helgi samt, hörku fjör. Ég náði að gera allt sem mér finnst skemmtilegast að gera. Hanga með vinum, spila fótbolta, drekka bjór, hitta konur og hanga í tölvunni. Topp helgi sem maður verður að endurtaka enhverntíman seinna. Ekki strax samt =) maður var alveg búinn á því. Vil nota tækifærið og þakka strákunum fyrir klassahelgi! Yo, respect.

p.s. Ný könnun!
Ace Johnson
DJÖFULL ertu leiðinlegur..... ég verð samt að segja það sama! Ég brotnaði gjörsamlega niður eftir að ég hitti þig sem var alltof snemma um kvöldið... þú ert held ég leiðinlegasti maður sem ég hef nokkurn tímann kynnst! og ég sé eftir því að hafa kynnst þér! hvað segiru? fæ ég gistingu hjá þér næstu helgi? ;)
26. mars 2007 klukkan 13:19
Hahaha, Sömuleiðis Lárus! Vá! =) Djöfull hata ég þig. Þú getur nú alveg fengið gistingu samt homminn þinn.
26. mars 2007 klukkan 13:30
Æjji kommon, Lalli var frábær í Sjallanum, ef ég man rétt þá varst þú þar.
Flott færsla, ég er líka kominn með nýja, tjekkaðu.

Bless Ási
26. mars 2007 klukkan 14:19
Ef "Lárus" og "Frábær" eru saman í setningu, þá er það málfræðivilla =)
26. mars 2007 klukkan 14:24
Ţórhallur
 
Já var Lárus í sjallanum? Þá er ég feginn að hafa slept því að fara þangað. Nóg að hitta hann í fótbolta á sunnudeginum.

Já þetta var fín helgi. Tip top.
26. mars 2007 klukkan 16:42
DJÖFULL erup þið leiðinlegir!!!!!
26. mars 2007 klukkan 16:57
Ási! kíktu á síðuna mína í blogghausar... sjáðu undir hverju þú ert! =)=)=)
26. mars 2007 klukkan 17:00
Farðu í rassgat Lárus!
26. mars 2007 klukkan 18:23
Hvað er að þér? ef marr fær boð í eina fertuga þá tekur maður því marr, ef þær eru hot þ.e.a.s

lang reyndastar :P

luv you Ace

/salute
27. mars 2007 klukkan 16:50
Kolli
 
!!! Nóg pláss ehh?
27. mars 2007 klukkan 22:50
Errr... Kolli, It doesn't seem what it looks like! The blog lies!

Daxi, það hefði verið hryllilegt daginn eftir... =P
27. mars 2007 klukkan 23:15
Ţórhallur
 
Átt ekki að hugsa með heilanum
28. mars 2007 klukkan 04:11
Whata community
29. mars 2007 klukkan 14:34
Jahérna, Viking Gylltur að hamsa könnunina. Kannski hefði maður átt að setja Miller i staðinn fyrir Thule eða eitthvað. Öss.

Jæjah, bestað drulla úr sér öðru bloggi bráðum.
29. mars 2007 klukkan 17:12

Skrifa athugasemd