Tónlist, ég elska tónlist!
30. mars 2007 klukkan 21:00
Eftir "menningarshock-ið", er ég flutti frá Laugum og til Akureyrar, fór maður að hlusta meira á tónlist, og þá er ég ekki að meina þetta gamla góða, heldur nýtt 'stuff'. Þið vitið, þessar helstu útvarpsstöðvar, X-ið og.. og... þúst hitt ruslið stundum, ekki bara Rás 2. Maður fór að hlusta á eitthvað annað en Muse, Smashing Pumpkins og Oasis þótt þessar þrjár séu náttlega snilld.Jæjah! Ég er byrjaður að hlusta mikið á bönd frá Skandinavíu núna. Meðal annars sænska rokkbandið "Kent". Mæli með því að þið tékkið á þessari hljómsveit, svona Coldplay/Sigur Rós 'bragð' í rokkinu þeirra.
Svo hef ég mikið verið með "Mew" á heilanum, rokkband frá Danmörku. Jói kallinn smitaði mig rosalega af þessu snilldarbandi.
Ég hef aldrei gefið mér tíma til að hlusta alminnilega á "HIM" frá Finnlandi, sem er náttúrulega bara frábært rokkband! með Ville Valo í broddi fylkingar.
Svo er það "Dikta"! sem er íslenskt indie rokk band. Alveg ótrúlegt að maður hafi ekki heyrt meira af henni. Þessir gaurar eru snllingar! Frábær tónlist sem ég hafði ekki heyrt mikið af fyrr en Jói kom í heimsókn síðustu helgi (takk aftur Jói).
Ég fíla nánast ekkert íslenskt, eiginlega bara Sigur Rós og Mínus. Þessir er mættir í þann hóp. Good stuff.
Ætla að skella nokkrum linkum af radioblogclub og myspace með lögum frá þessum fjórum hljómsveitum, daglegt brauð fyrir suma, upprifjun fyrir marga, og vonandi uppgötvun fyrir einhverja. Þetta er hágæða rokk frá norðulöndunum. Veskú!
Kent - Pärlor (Rólegt og gott.)
Kent - Max 500 (Fínt lag af nýjustu skífu þeirra.)
Kent - FF (Gegt lag.)
Mew - Myspace - "The Zookeeper's Boy" og "Special" eru frábær. Nýji diskurinn þeirra "And The Glass Handed Kites" er þessi virði að kaupa/downloada. Frábær skífa.
HIM - Rip Out The Wings Of A Butterfly (Geðveikt lag!)
HIM - Right Here In My Arms (Með flottari lögum frá þeim.)
HIM - Wicked Game (Flott Cover.)
Dikta - Myspace - "Breaking The Waves" er mjög flott lag hjá þeim.
Þar hafiði það. Áður en ég fer að njóta pásakfrísins og opna fyrsta bjórinn langar mig að gera lítinn lista sem mér þætti gaman ef þið mynduð fylla út, ekki mikið verk (samt lúmskt erfitt).
Nefnið fimm uppáhalds hljómsveitir ykkar! Do it! (.. or i'll kill you!)
Minn listi:
#1 Muse
#2 Smashing Pumkins
#3 Oasis
#4 Sigur Rós
#5 Placebo
Your Turn! - Ciao!
Ace Johnson

Smashing Pumpkins lang efst. Síðan í engri ákveðri röð eru
Muse, Mars Volta, Pearl Jam...og bara...veit ekki...Korn?