Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstaða: Single
  • Um mig: Ég er fæddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annað: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríið

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburðir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Óendanleg Leti..

04. apríl 2007 klukkan 15:51
Sæti Páskaungi!Páskafríið komið, nánast ekkert að gera nema að sofa. ZzZzzzzz... Það er svo gott að sofa..

Maður var nú reyndar kominn á lappir kl 10:30 í morgun.. en ég hef varla gert handtak síðan. Netið 'browse'-að, kýkt á Liverpool.is, Fotbolti.net, MySpace og eftir það fór ég aðeins að dútla mér við nýju undirsíðurnar á bloggar: "Music Videos" og "Funny Videos" Er að bæta við myndböndum smátt og smátt. Jebbsí.

Fékk mér svo lýsi, skyr og kaffi. Kaffi! Margir hata, eða þola ekki kaffi. Mörgum finnst kaffi bara vont og jafnvel gagnslaust. Sumum finnst kaffi gamaldags og flestir undir tvítugs drekka bara aldrei kaffi. Ég varð nýlega 'hooked' á kaffi. Mér finnst kaffi gott og það fyrsta sem ég geri á virkum degi er að skella í mig kaffibolla. Why?! Það svínvirkar! Þetta virkar eins og eldsneyti sem kemur manni í gang á morgnanna. Alger snilld. Hins vegar er ekki hollt að drekka 4 bolla á dag eða meira. Einn - tveir bollar á dag gera manni engan skaða. Þvert á móti. Jæjah..

"Gaman" að segja frá því að ég fékk SMS frá Daxa um daginn. Ætli það hafi ekki verið 1. apríl líka. Anyways, sms-ið hljóðaði einhvern veginn svona: "Hæ, geturðu hringt í mig!.. Need 2 talk! í síma 5359988. Minn er batteríslaus" ... Og viti menn! Ég er náttúrulega góður gaur og hringdi, fyrst að Daxi honey þurfti svona "endilega" að tala við mann. Nei nei, kemur ekki: "Góðan daginn, þetta er hommalínan blablabla, ýttu á 1 fyrir .. blablablah! o.s.fv. ... " Ég hringdi beint í Daxa og skammaði hann fyrir að skemma daginn fyrir mér =P Nei gríííín! Þetta var bara fyndið. =)

Núh, Loksins unnum við (Magni) leik í Lengjubikarnum og var það mjög sætur sigur. 3-2 sigur gegn Reyni/Dalvík. Og loksins fékk ég að byrja inná líka, fékk meirað segja númerið mitt #11 einnig. Var settur á vinstri kantinn þar sem ég á heima og var bara sáttur með mína frammistöðu. Maður spilaði nú bara fyrri hálfleik samt, og var það alveg nóg fyrir mig enda alveg búinn á því í leikhléinu.

Mér fannst við betri í leiknum, allavega í fyrri hálfleik en Reynir/Dalvík skoraði fyrsta markið þrátt fyrir það. Hreggó kallinn jafnaði bara mínútu síðar og kom okkur svo yfir 2-1 þegar meira var liðið af fyrri hálfleik. Svo misstum við fyrirliðann Ingvar útaf rétt fyrir leikhleíð og vorum við einum færri eftir það.
Í seinni hálfleik komust Reynir/Dalvík betur inní leikinn og sóttu mikið. Viktor (gaur sem er með mér í ensku =P) jafnaði með rosalegu skoti fyrir utan teig. Svekkjandi, en undir lokinn datt boltinn fyrir Palla bakvörð og skoraði hann sigurmarkið á 88. mínútu við gríðarleg fagnaðarlæti á bekknum. Mikið gaman, mikið fjör.

Ekki nóg með að við fengum þrjú stig hjá Reyni/Dalvík, heldur fengum við önnur þrjú gefins frá Leikni F. Takk Jói! En.. þeir voru víst með ólöglegan varamann þegar þeir kepptu við Magna helgina áður. Hrikalegur dómur fyrir Jóa og Egil og þetta eru ekki þrjú stig sem Magnamenn geta verið stoltir af, að hafa fengið. Svona er þetta nú samt stundum.

Plan helgarinnar er ekki merkilegt. Ég held að ég geri bara ekki neitt nema hanga heima á Húsavík.. ... Ég meina hanga á Húsavík þar sem Mamma og Pabbi eiga heima! ekki ég! ... og læri kannski smá. Stefni á djammlausa helgi en það gæti nú breyst. Maður verður að vera duglegur síðustu vikurnar í skólanum. Jamms. Svo þarf maður að fara finna vinnu og húsnæði bráðum. Fullt að gera.

Þetta er orðið ágætt núna. Heyri í ykkur.
Ace Johnson
kaffið gerir sitt gagn já...
04. apríl 2007 klukkan 22:03
Þórhallur
 
hehe góður Daxi ;)
05. apríl 2007 klukkan 18:27
...
07. apríl 2007 klukkan 01:05
hahaa PWNED!!1!"?one!!one!11

n00b ;)

lovjú
10. apríl 2007 klukkan 12:36

Skrifa athugasemd