Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstaða: Single
  • Um mig: Ég er fæddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annað: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríið

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburðir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Svona eiga frí að vera!

10. apríl 2007 klukkan 15:12
Lazy polarbears!Maður hefur verið með smá svona móral, eða þúst samviskubit yfir "the extreme laziness" sem hefur verið á manni í í páskafríinu. Ég hef nánast ekkert gert! .. nema spila fótbolta, vera í tölvunni og djammað aðeins. En hey! Þá hugsaði ég. Þetta er nú páskafrí, og ef þetta á að heita frí, þá er nú bara eins gott að taka sér frí! Annars fyrir þá sem nýta frí-ið til að vinna, þá er það náttúrulega bara mjög sniðugt líka. En að hafa samviskubit fyrir að vera latur í fríi. Það er alger óþarfi.

Kominn með æði fyrir einu lagi sem er spilað á X-inu stöku sinnum. Þetta er nú ekkert glænýtt lag en mjög róandi eitthvað. Here it is: The Postal Service - Such Great Heights . Love it. Jámms!

Síðustu dagar hafa semsagt verið mjög 'nice' .. Sofi sofi sof, spörk hafa dunið á boltum og létt hefur verið á bjórflöskum. Venjulega drekk ég Viking Gylltan en núna síðast drakk ég Budweiser Budvar og er þetta ekki sami Budweiser og Steini kallinn drekkur (sem er hryllilega vondur) No offence Stone! .. heldur er þetta tékkneskur eðalbjór. Mæli með honum!

Now, plan-ið fyrir síðustu helgi fór forgörðum. Plan-ið var s.s. að djamma ekki og hanga heima í leti og kannski læra smá. (Yeah right =P) Ég hef ekkert lært heima í páskafríinu, og ég nennti ekki að vera heima og vera í fríi frá fótboltanum, þannig að ég keyrði bara á ak til að fara á æfingar. Og svo djammaði ég eiginlega báða dagana um helgina, ehm (s.s. Lau. og Sun.) Öss!


Jáh, Jón Þór kom í heimsókn. Hann nær alltaf að draga mig á djammið =P en þau djömm hafa yfirleitt verið snilld. Á laugardaginn andskotaðist maður í Sjallann, á.. err, hvað var nú aftur í Sjallanum þá? Man ekki! Anyways, fór með Jóni Þór en við vorum haug-ölvaðir! Það var samt hörkufjör í Sjallanum og hitti maður fullt af fólki. Palla kallinn (raufarhöfn-ingur ..) og Steina (Stone!) og Þóreyju og Magga. Svo voru.. err, man nú ekki eftir miklu en það voru allavega fullt af konum og bjór!.. og dansi! Ég týndi Jóni Þór snemma eins og venjulega en Hössi kallinn var driver og reddaði okkur báðum heim einhvern veginn.

Páskadagurinn byrjaði svo með smá þynnku, ekkert nema gott um það að segja svo sem. Err.. svo lá ég bara í leti allan páskadaginn held ég, þangað til ég fékk Jón Þór aftur í heimsókn. Hann bara: "á ekkert að djamma í kvöld eða?" Ég bara.. "err err.. maður kýkir kannski með þér niðrí bæ, í einn bjór" Svo varð bjórinn af tveim, og tveir bjórar að skotum og þriðja bjór.. En það var samt hörkufjör! Það var svo pakkað á Kaffi Ak að það var biðröð fyrir utan í smá tíma. Hitti Gunna og Þóru ex-bosses, Svenna og Jóhönnu Elínu og einhverja fleiri. Ýkt fjör. Hitti nokkra Magnamenn og þeir bara: "Bíddu, ert þú ekki að fara á æfingu í bítið eða?" Ég bara "Sömuleiðis!" Hehe. Sofnaði kl. fimm eða eitthvað.

Annar í páskum: Reif mig á fætur kl. 10:30! Æfing, ég hélt að ég myndi deyja þegar klukkan hringdi. Skellti í mig tveim banönum og kaffibolla og æfingin var bara mjög hressandi. Magnað alveg. Þeir Magnamenn sem ég hitti á djamminu kvöldið áður létu nú ekki allir sjá sig =P (suckers!) Svo fór maður aðeins á rúntinn fyrir svefn aldarinnar.

Vaknaði í "morgun" kl. 12:30 eftir laaaangan og góóóóðan svefn. Bam! Fór í tölvuna að blogga, drekkandi kaffi og hlusta á fína tónlist. Og núna er ég orðinn svangur! ... Ætla fara út að finna mér eitthvað að borða. Bæjó.

Fullyrðing vikunnar kemur frá Möllu frænku!. "Ég veit sko alveg hvað klaki er.. það er vatn sem dó úr kulda!" .. =P hehe.
Ace Johnson
ohhh ég sá þig ekkert á sunnudagskvöldinu.... var reyndar bara á rúntinum....
en já fullyrðingin er bara flott...
kíkkum kannski á djamm næstuhelgi bara ;o)
10. apríl 2007 klukkan 15:27
Guðfinna Árnadóttir
 
það voru paparnir í sjallanum...bara dúndur fjör:) takk fyrir síðast gamli minn;)
10. apríl 2007 klukkan 16:00
Paparnir! Einmitt !! Takk sömuleiðis =)
10. apríl 2007 klukkan 17:24
Já.. Paparnir klikka ekki... verð samt að viðurkenna að ég þurfti aðeins að hugsa mig um til að muna hverjir hefðu verið að spila!;) hehe.. Enda skiptir það yfirleitt engu máli, heldur bara að skemmta sér vel! Takk annars fyrir síðast!:) Þetta var fjör!
10. apríl 2007 klukkan 17:45
Kolli
 
Hey, ég var búinn að gleyma þessu lagi, ætlaði að "niðurhala" því einhverntímann.
10. apríl 2007 klukkan 18:39

Skrifa athugasemd