Mögnuð Helgi á Akureyri.
16. apríl 2007 klukkan 02:26
Vá! Langt blogg! =P Játs, Ég er vægast sagt bara mjög sáttur með liðna helgi. Mikið gaman, mikið fjör. Djamm, fótbolti og söngvakeppnin. Dagarnir fyrir helgina voru nú ekki uppá marga fiska samt..Skólinn jú byrjaður og ekkert nema ágætt um það að segja svo sem, nema hvað kennarinn sem kennir mér hvað mest var veik á fyrsta degi. Það er kannski ekkert leiðinlegt að fá frí í tíma en að rífa sig á fætur klukkan átta og troða í sig kaffibolla, keyra í skólann og BAM! enginn tími. Það er svona smá pirrandi. Sérstaklega vegna þess að maður getur ekki sofnað strax eftir kaffibollann sko. Ég fór bara á bókasafnið að lesa blöðin og mætti svo í tíma númer 2 og end of story.
Dagur tvö. Ég var náttúrulega ekkert að hafa fyrir því að tékka hvort kennarinn sá hinn sami væri veikur aftur og rauk ég í skólann (kl 9 í það skiptið), útúr koffínaður, með hárgreiðslu mánaðarins og BAM enginn tími aftur... Ég bara "Vááá... come ON!" .. fór heim, í rúmið og lá vakandi í rúman klukkutíma með galopin augun, hlustandi á tónlist..
Dagur þrjú. Núna ætlaði ég sko ekki að fara í skólann án þess að tékka hvort hún væri veik aftur! Fór á netið eldsnemma átta, ýkt pirraður eins og venjulega á morgnanna, hélt á kaffikrukkunni minni og tékkaði vma.is síðuna til að sjá hvort kvikindið væri veik aftur (with hope =P), en neinei, núna var hún ekki á listanum yfir veika kennara þannig að ég bara gerði mig til í hvelli og drakk kaffið á leiðinni í skólann. Brúmm brúmm.
Ég gekk inní stofuna og hún var full af einhverjum krökkum sem ég hafði aldrei séð áður, og svo var einhver allt annar kennari líka. Ég gekk út aftur og hugsaði. "þetta meikar ekki sens!" fór aftur inní stofuna og kennarinn sagði við mig: "Heyrðu já, hún Katrín er veik þannig að ég stal stofunni" .. ..... .... %$#&%"!! ... Þá hafði bara GLEYMST að setja hana á listann einmitt þennan dag... Devils..
Jáhh! =Þ Helgin var samt góð. Föstudagurinn var rólegur, kýkti í heimsókn til Arnþórs og Söndru. Einnig voru þar Fanney, Lárus, Valdi, Jakob (sænski) og Björgvin Óli (bróðir Guffu). Nokkrir bjórar drukknir, horfðum með öðru auganu á Snatch (snilldar mynd btw) og þetta var bara nice. Svo fórum við á Capone og vá.. bara biðröð af 16-19 ára krökkum fyrir utan. Maður asnaðist nú inn eftir nokkra bið og ég þekkti ekki einn mann þarna inni.. Mestall Reykvíkingar pott þétt. Svei, labbaði á Kaffi Ak og hitti Sólveigu, Jóhönnu og Þórdísi þar og settist ég hjá þeim. Þetta var fínt, rólegt og ágætt.
Vaknaði um hádegi á laugardeginum og fór ég með öllu Magnaliðinu til Grenivíkur á æfingu. Hressandi ferð í góðu veðri. Svo þegar við komum til baka skrapp ég á rúntinn með Lárusi kvikindi. Gaman að rúnta um bæinn í góðu veðri. Anyways! Um kvöldið kom Jón Þór og sátum við niður að gömlum vana og fengum okkur bjór. Egill kallinn kom líka í heimsókn en Jói beilaði! Beiler Jói! =P gríngrín!. Söngvakeppnin náttúrulega í gangi þetta kvöld líka og þar sem ekkert sjónvarp er í íbúðinni núna, þá horfðum við Jón Þór svona lauslega á þetta á netinu. Ég verð nú að viðurkenna að ég missti af Bjössa kallinum en ég frétti að hann hefði farið á kostum. Seigur kallinn. Ég heyrði sigurlagið, sem var einmitt frá VMA, hóhó! Vel sungið hjá stráknum og Unnur Birna á hljómborðið! en hún var einmitt með mér í leikskóla og grunnskóla á laugum. Ási frægur..
Fórum svo þrír á djammið! Við vorum orðnir vel ölvaðir þegar við ákváðum að fara niðrí bæ. Allavega ég og Jón Þór. 'Eníveis!' Okkur var skutlað niðrí bæ og byrjuðum við á Amour. Amour er orðinn slappur finnst mér.. Aldrei neitt fjör þar lengur fyrir minn smekk. Bara einhver lýður þar sem þykist vera of fínn fyrir alvöru sukk! =P. Við fórum bara strax á Kaffi Ak ef ég man rétt.. err.. Egill kom nú ekki með okkur, hann fór á Capone. Svo var djammað og djammað og fullt af fólki sem maður þekkti á Kaffi Ak. VMA-ingar, gamlir félagar frá Laugum og Magnamenn. Búkollubátur eftir djammið.. bara fáránlega góð máltíð þegar maður er fullur. Öss! Great Success!
Við Jón Þór náðum einhvern veginn að fiska far heim hjá ókunnugum stelpum. Egill og kona hans komu seinna með Taxa og so bra Zzzzzzzzzzzzzzz.... með góða tónlist á fóninum.
BAM! Sunnudagur og engin þynnka. Whaaaat?! Jáh! Alger snilld. Jón Þór var samt að drepast úr þynnku og spurning hvort hann hafi tekið minn kvóta líka, hehe. En.. þegar strákarnir voru farnir fór ég í sund í góða veðrinu með Steina Magnamanni og damn! Það var nice. Sól og blíða. Fullt af fólki (og gellum) í sundi og kannski ekkert skrítið. Jebbs, snilld. Og þannig hljóða síðustu dagar í lífi Ace.Ætla enda þetta á ljúfum tónum sem ég nældi í "alveg löglega" í gegnum netið í kvöld. Shibbý!
30 Seconds To Mars - The End Of The Beginning
Death Cab For Cutie - Soul Meets Body
The Postal Service - The District Sleeps Alone Tonight
Disturbed - Prayer
Enjoy your weekend! Love, Ace!
Ace Johnson
