Ace

  • Nafn: Ace Johnson
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Nemi í VMA
  • Hjúskaparstaða: Single
  • Um mig: Ég er fæddur 18. ágúst. 1985 og uppalinn á Laugum í Reykjadal. Áhugamál mín eru fótbolti, konur, bjór, tónlist og kvikmyndir. >=)
  • Annað: My Myspace!

Auglýsing

Sumarfríið

Könnun

How old are you?!

Klukkan

Atburðir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Extreme Weekend.

04. mars 2007 klukkan 22:17
Liverpool merkiðJáh, vægast sagt crazy helgi. Byrjaði allt með því að ég þurfti að sleppa fótboltaæfingu á föstudaginn vegna meiðsla. Fór til læknis í staðinn og hann sagði að þetta væru "álags/þreytu" meiðsl eftir of mikla þjálfun. Ég á að taka því rólega í viku eða svo. Um kvöldið fór ég með Jóni Þór niðrí bæ og vorum við flakkandi milli staða. Capone, Kaffi Ak og Amour. Frekar dauft í bænum en þó nokkrir á Capone og drukkum við Jón Þór full djarft, og tókum við Taxa heim rétt fyrir fjögur.

Laugardagur! Liverpool - Manchester United á Anfield. Við horfðum á leikinn á Strikinu ásamt um 60 manns. Hörkustemmning og fengum við okkur eðal hamborgara sem Arnþór kallinn eldaði handa okkur! Ekki voru úrslit leiksins jafngóð því Man Utd. skoraði sigurmark leiksins á 90. mín, alveg gegn gengi leiksins! og voru mínir menn vægast sagt betri aðilinn í leiknum! .. þetta fór alveg með skapið hjá manni. Til að bæta þetta aðeins keypti ég dýrasta bol sem ég hef fjárfest í að andvirði 10.190 kr. og var það Liverpool treyjan (6.990 kr.) + númerið 11 aftan á ásamt "M.Gonzalez" sem ku vera einn af fræknum leikmönnum liðsins. (3.200 kr.) Og sé ég ekki eftir krónu og hananú!

Viking GyllturVið Jón Þór byrjuðum kvöldið með því að panta Domino's Pizzu og leigðum okkur myndina Munich og horfðum á hana og drukkum bjór. Jenný Lára skutlaði okkur niðrí bæ og fórum við í Sjallann. Stútfullur Sjalli og ótrúlega margir þarna sem maður þekkti. Ég skemmti mér konunglega, í fyrstu var maður bara spjallandi og spjallandi og drakk ég mjög lítið. Jón Þór fór heim á undan mér en sjálfur eyddi ég seinni partinum á kvöldinu á dansgólfinu. Yeh, fancy kvöld. Þurfti reyndar að labba heim eftir ballið en það var allt í lagi. Svaf svo út! Gegt.

Magni keppti við Völsung á Húsavík í dag og unnum við þá 3-0 í fjörugum leik. Ég sat nú bara allan tímann á bekknum í þetta skiptið vegna meiðslanna.

Ágætis helgi bara fyrir utan þjófnað ManU á Anfield.. Svona er þetta stundum. En jáh. I'm done.
Ace Johnson
4 athugasemdir

Nýr Fítus!

04. mars 2007 klukkan 15:43
Vá! Sjáiði klukkuna sem er komin á síðuna! Djöfull er hún töff!! It's like.. tikk tikk tikk.. tikktikktikktikktikktikk tikktikktikktikktikktikktikk, og svo framvegis. Alger snilld að horfa á þetta. Nýstárlegt look á klukkunni sko, ekkert verið að hafa fyrir því að setja tölustafi sem segja hvað hún sé. Klukkan er c.a. 14 mín í "O" Marvellous!

Búinn að bæta inn smá upplýsingum um Ace, í Ace - Info. Nokkrar sniðugar spurningar sem ég hef svarað. Fékk þennan skemmtilega spurningalista hjá Tinnu Rún. Gefum henn gott klapp fyrir það *klapp klapp* en mig grunar svo sem að hún hafa fengið hann hjá einhverjum líka ehm.

Einnig bætti ég inn smá Ace glugga á forsíðuna svona eins og Daxi er með! (hann er svo mikið bjútí) og reyndar fleiri. Basic info um mig í stuttu máli. Svo þarf maður nú að smella einhverjum myndum af manni þarna. Það held ég nú.

Mun skrifa um gleði og sorg helgarinnar á eftir. Until then.. *tsssssss*
Ace Johnson
4 athugasemdir

Review since 2005. Part Two.

02. mars 2007 klukkan 01:56
Jæjah, best að ljúka þessu af.

Ágúst 2006 var sem sagt óhófsamasti mánuður sem ég hef lifað. Vinna, vinna, vinna. Djamm, djamm djamm sem endaði svo með nikótínfíkn. Jæjah! September 2006. Framhaldsskólinn á Laugum settur, fullt af krökkum komu, nýjum og gömlum, og Laugar fyllitist aftur af lífi. Ekkert nema gott um það að segja. Fleiri viðskiptavinir til að afgreiða, fótboltaæfingar með strákunum í skólanum, og fleiri djammfélagar.

Athafnir mínar breyttust í rútínu. Svaf alla daga út, þurfti yfirleitt ekki að mæta fyrr en 11:30 í vinnuna, fótbolti 3-4 sinnum í viku og djamm um helgar, og hverja einustu helgi.. Þetta var svo auðvelt. Ekkert stress, engar áhyggjur, og engan vegin krefjandi. Helgin varð að aðalatriðinu í lífi mínu. VinnaFóbóDjamm! Yay! Helgin komin!, Konur of áfengi, Vúhúúú! ... Um leið og mánudagur var liðinn var stutt í næstu helgi! YES! PARTÝ! ...

Jólin komu og fótboltinn fór í pásu, vinnan fór í smá pásu líka. Aðfangadagur var á sunnudegi og ég tók mér meira að segja pásu þá helgina. Jáh. Shocking! I know. En maður bætti það náttúrulega bara upp með því að djamma annan í jólum. Vúúúú! Bjór! Party og Gellur!.. Ég hafði ég ekki sleppt einni helgi síðan ég hætti að spila WoW (Maí) og hinn blessaði ágúst mánuður skaffaði einum bjórlausum dag..

Svei.. Screw this! "Þessu nenni ég ekki lengur" hugsaði ég og fór aðeins að spá í framtíðinni. "Hvað langar manni að verða" Mig langar að verða ógeðslega ríkur! Jú, og það kemur sko ekki að sjálfum sér. Maður getur annað hvort unnið í lottóinu, fengið einhverja ótrúlega sniðuga hugmynd sem ávaxtar svívirðilegum peningaupphæðum, eða menntað sig og komist í góða vinnu.

Strax eftir áramótin skráði ég mig í VMA á Viðskiptafræðibraut. Og sé ég svo sannarlega ekki eftir því, því að í fyrsta skipti er ég virkilega að njóta þess að læra. Á sama tíma hætti ég að reykja og djammið hefur orðið mun hófsamara líka. Núna spila ég fótbolta í meistaraflokki með Magna og verðum við í 2. deild Íslandsmótsins í sumar. Mér þykir vænt um lífið í dag. 10-15 klukkutímar á viku fara í fótbolta, keppnir og æfingar, þvílíkt krefjandi og mjög gaman! Ég er í 17 einingum í VMA og myndi það flokkast undir fullt nám, ekkert extra mikið en samt bara gaman að því. Kominn i form! og líður miklu betur líkamlega og andlega.

Þetta er orðið ágætt núna. Búinn að ryfja upp síðustu 2 ár á tveimur dögum og satt að segja ekki mikið meira sem gerðist á þessum tíma. Margir höfðu voðalegar áhyggjur af mér vegna tölvunnar, sérstaklega nánustu ættingjar og vinir að sjálfsögðu. Þessi tími var frábær reynsla, og sé ég ekki eftir einni mínútu meðan á þessu stóð. Þetta er búið núna og kannski ágætt líka. Að sjá eftir hlutum sem maður hefur gert er bara sóun á orku. Auðvitað á maður að spá í því sem maður er að gera, og vanda sig í lífinu, en að salta í sárið með eftirsjá er óþarfi, nema maður læri af því. Það er mín skoðun..

Rawr. =)
Ace Johnson
3 athugasemdir

Review since 2005.

01. mars 2007 klukkan 01:58
BAM! Í mars 2005, kom út online tölvuleikur að nafni World of Warcraft sem og ég hafði reyndar beðið eftir og svo fjárfesti ég í honum. Ekki tekur langan tíma að fara yfir tímabilið sem ég spilaði leikinn en það var frekar ófjölbreytt og atburðalítið. En, engu að síður gríðarlega skemmtilegt og sé sko ekki eftir því!

Hófsemi hefur ekki hentað mér í gegnum tíðina og tók ég þennan leik trausta taki. Spilaði hann mikið. Svona til að byrja með gaf ég mér þó tíma til að spila fótbolta líka, djamma og mæta hófsamlega í skólann. Tölvan mín og ég bjuggum hjá Daxa kallinum í Tröllasteini. Love you Daxi. Þessi vorönn endaði þó með nánast einingalausum árangri. Svo kom sumarið og Laugafiskur hf. fylgdi. Djammaði lítið þetta sumar, spilaði fótbolta og WoW.

Haustönnina þetta sama ár ákváðum við Kolli að vera á vistinni og saman í herbergi yay! þar sem við gátum nýtt okkur fíkn leiksins til hins ýtrasta, allavega ég. Vorum við mjög góðir í því að sofa yfir okkur og hlustuðum við alltaf á Sigur Rós meðan við sváfum. Þetta fannst Kolla ekki sniðugt til lengdar og fór af vistinni, heim til sín aftur, til þess að geta vaknað og mætt í skólann (held ég) því drengurinn ætlaði að útskrifast! sem og hann gerði. Flott hjá honum. Ég hins vegar hafði engann tíma til að læra. Október 2005. World of Warcraft tók yfir djammið og fótboltann stuttu eftir að Kolli fór og byrjaði ég að spila jafn mikið og ég var vakti. Eftir áramótin var ég búsettur hjá Þórhalli. Love you too Halli! Spilaði ég örugglega meira en flestir á landinu...

Apríl 2006, og þá hætti ég í Framhaldsskólanum á Laugum. Enda mætti ég ekkert, og sinnti náminu ekkert sömuleiðis. Fór að vinna í fiskinum, spilaði reyndar með vinnunni aðeins en hætti alveg í Maí mánuði seinna. Skrapp til Danmerkur og kom endurnærður til baka. Tók mig á í boltanum og ekki síður í djamminu. Þetta sumar var rosalegt. Djamm hverja einustu helgi og gott betur.

Ágúst 2006. Byrjaði að vinna í Laugabæ, og þvílikur munur það var að komast í þessa vinnu. Ekki nóg með það að Laugafiskur er hrikalega þreytandi líkamlega og andlega, þá fékk ég líka þessa frábæru vinnuveitendur! Gunni og Þóra, algerir snillingar. Ágúst var hreint út sagt ótrúlegur. 248. vinnustundir, Landsmótið, Akureyri, Menningarnótt, Menningarvaka Akureyrar, og bara allt! Sukk hægri vinstri, djamm og djús! Þvílíkur mánuður. En uppúr ágúst varð ég háður reikingum...

Skrifa afganginn á morgun. Ási þreyttur..
Ace Johnson
6 athugasemdir

Fantastic Idea!

28. febrúar 2007 klukkan 19:39
Nauh! Ási kominn með bloggsíðu? Djöfull er hann frumlegur og frábær að fá svona æðislega hugmynd sem engum öðrum hefur dottið í hug. Ógisslega nýtt og, og sniðugt! Bloggsíða! Yay!

Guð minn góður já, maður er svo lame. Svona er þetta nú samt. Alltaf gaman að gera sig að fífli á netinu.

Svona svo ég fari yfir bloggsíðuferil minn þá er þetta síða númer 3 að ég held. Ég tel nú ekki með síður sem hafa ekki lifað af einn dag. Yeh, read below!

www.folk.is/brandurinn - Dánarstund: 24. apríl 2004 - 14:34
Þegar bloggsíðu æðið kom með folk.is varð maður náttlega að vera hluti af hópnum og búa til síðu líka. Var ég bara nokkuð duglegur að blogga þótt ég segi sjálfur frá! og bloggaði næstum daglega.. Kannski ekki neitt til að vera stoltur af en whatever! Svo ákváðum við Bergur að smíða nýja síðu. Bliss.

www.blog.central.is/bliss - Dánarstund: 20. janúar 2005 - 11:22
Naut þessi bloggsíða bara nokkura vinsælda og fengum við einnig verðlaun fyrir þessa smíð. Bloggarar eða bloggsíða skólans var hún kosin á árshátið 2004 1. des. held ég.. Kannski aftur eitthvað sem maður ætti ekkert að vera stoltur af heldur. Frekar lame að vera svona ógisslega obsessed bloggari. Anyways! Þegar þessi síða leið undir lok tók ég rúmlega 2 ár í pásu í því að blogga. Until today!

brandur.bloggar.is - Fæðingardagur: 28. febrúar 2007 - 19:39
Tam Tam TAM!! Oh my god! Ný síða! Vííííí! - Jáh, lífstíll minn hefur breyst mikið undanfarið, og núna þegar maður býr ekki lengur á Laugum þá er alltaf svo mikið að frétta, heh. Svo hefur maður verið frekar busy í tölvuheiminum síðustu 2 árin og var bara enginn tími til að blogga (né gera neitt annað basicly) Núna however ákvað maður að taka sig til og splæsa á sig einni eðal bloggsíðu og ætla að reyna að haga mér eftir því.

Ace!, has returned stronger than ever!... Rawr!

Ace Johnson
4 athugasemdir