29. apríl 2007 klukkan 20:30
Jább, Þannig er það nú bara. Ace.Bloggar.Is er í sumarfríi ... og ehm því mun ljúka þegar ég nenni að byrja aftur. Góðar stundir!
Ace Johnson
16. apríl 2007 klukkan 02:26
Vá! Langt blogg! =P Játs, Ég er vægast sagt bara mjög sáttur með liðna helgi. Mikið gaman, mikið fjör. Djamm, fótbolti og söngvakeppnin. Dagarnir fyrir helgina voru nú ekki uppá marga fiska samt..
Skólinn jú byrjaður og ekkert nema ágætt um það að segja svo sem, nema hvað kennarinn sem kennir mér hvað mest var veik á fyrsta degi. Það er kannski ekkert leiðinlegt að fá frí í tíma en að rífa sig á fætur klukkan átta og troða í sig kaffibolla, keyra í skólann og BAM! enginn tími. Það er svona smá pirrandi. Sérstaklega vegna þess að maður getur ekki sofnað strax eftir kaffibollann sko. Ég fór bara á bókasafnið að lesa blöðin og mætti svo í tíma númer 2 og end of story.
Dagur tvö. Ég var náttúrulega ekkert að hafa fyrir því að tékka hvort kennarinn sá hinn sami væri veikur aftur og rauk ég í skólann (kl 9 í það skiptið), útúr koffínaður, með hárgreiðslu mánaðarins og BAM enginn tími aftur... Ég bara "Vááá... come ON!" .. fór heim, í rúmið og lá vakandi í rúman klukkutíma með galopin augun, hlustandi á tónlist..
Dagur þrjú. Núna ætlaði ég sko ekki að fara í skólann án þess að tékka hvort hún væri veik aftur! Fór á netið eldsnemma átta, ýkt pirraður eins og venjulega á morgnanna, hélt á kaffikrukkunni minni og tékkaði vma.is síðuna til að sjá hvort kvikindið væri veik aftur (with hope =P), en neinei, núna var hún ekki á listanum yfir veika kennara þannig að ég bara gerði mig til í hvelli og drakk kaffið á leiðinni í skólann. Brúmm brúmm.
Ég gekk inní stofuna og hún var full af einhverjum krökkum sem ég hafði aldrei séð áður, og svo var einhver allt annar kennari líka. Ég gekk út aftur og hugsaði. "þetta meikar ekki sens!" fór aftur inní stofuna og kennarinn sagði við mig: "Heyrðu já, hún Katrín er veik þannig að ég stal stofunni" .. ..... .... %$#&%"!! ... Þá hafði bara GLEYMST að setja hana á listann einmitt þennan dag... Devils..
Jáhh! =Þ Helgin var samt góð. Föstudagurinn var rólegur, kýkti í heimsókn til Arnþórs og Söndru. Einnig voru þar Fanney, Lárus, Valdi, Jakob (sænski) og Björgvin Óli (bróðir Guffu). Nokkrir bjórar drukknir, horfðum með öðru auganu á Snatch (snilldar mynd btw) og þetta var bara nice. Svo fórum við á Capone og vá.. bara biðröð af 16-19 ára krökkum fyrir utan. Maður asnaðist nú inn eftir nokkra bið og ég þekkti ekki einn mann þarna inni.. Mestall Reykvíkingar pott þétt. Svei, labbaði á Kaffi Ak og hitti Sólveigu, Jóhönnu og Þórdísi þar og settist ég hjá þeim. Þetta var fínt, rólegt og ágætt.
Vaknaði um hádegi á laugardeginum og fór ég með öllu Magnaliðinu til Grenivíkur á æfingu. Hressandi ferð í góðu veðri. Svo þegar við komum til baka skrapp ég á rúntinn með Lárusi kvikindi. Gaman að rúnta um bæinn í góðu veðri. Anyways! Um kvöldið kom Jón Þór og sátum við niður að gömlum vana og fengum okkur bjór. Egill kallinn kom líka í heimsókn en Jói beilaði! Beiler Jói! =P gríngrín!. Söngvakeppnin náttúrulega í gangi þetta kvöld líka og þar sem ekkert sjónvarp er í íbúðinni núna, þá horfðum við Jón Þór svona lauslega á þetta á netinu. Ég verð nú að viðurkenna að ég missti af Bjössa kallinum en ég frétti að hann hefði farið á kostum. Seigur kallinn. Ég heyrði sigurlagið, sem var einmitt frá VMA, hóhó! Vel sungið hjá stráknum og Unnur Birna á hljómborðið! en hún var einmitt með mér í leikskóla og grunnskóla á laugum. Ási frægur..
Fórum svo þrír á djammið! Við vorum orðnir vel ölvaðir þegar við ákváðum að fara niðrí bæ. Allavega ég og Jón Þór. 'Eníveis!' Okkur var skutlað niðrí bæ og byrjuðum við á Amour. Amour er orðinn slappur finnst mér.. Aldrei neitt fjör þar lengur fyrir minn smekk. Bara einhver lýður þar sem þykist vera of fínn fyrir alvöru sukk! =P. Við fórum bara strax á Kaffi Ak ef ég man rétt.. err.. Egill kom nú ekki með okkur, hann fór á Capone. Svo var djammað og djammað og fullt af fólki sem maður þekkti á Kaffi Ak. VMA-ingar, gamlir félagar frá Laugum og Magnamenn. Búkollubátur eftir djammið.. bara fáránlega góð máltíð þegar maður er fullur. Öss! Great Success!
Við Jón Þór náðum einhvern veginn að fiska far heim hjá ókunnugum stelpum. Egill og kona hans komu seinna með Taxa og so bra Zzzzzzzzzzzzzzz.... með góða tónlist á fóninum.
BAM! Sunnudagur og engin þynnka. Whaaaat?! Jáh! Alger snilld. Jón Þór var samt að drepast úr þynnku og spurning hvort hann hafi tekið minn kvóta líka, hehe. En.. þegar strákarnir voru farnir fór ég í sund í góða veðrinu með Steina Magnamanni og damn! Það var nice. Sól og blíða. Fullt af fólki (og gellum) í sundi og kannski ekkert skrítið. Jebbs, snilld. Og þannig hljóða síðustu dagar í lífi Ace.
Ætla enda þetta á ljúfum tónum sem ég nældi í "alveg löglega" í gegnum netið í kvöld. Shibbý!
30 Seconds To Mars - The End Of The Beginning
Death Cab For Cutie - Soul Meets Body
The Postal Service - The District Sleeps Alone Tonight
Disturbed - Prayer
Enjoy your weekend! Love, Ace!
Ace Johnson
10. apríl 2007 klukkan 15:12
Maður hefur verið með smá svona móral, eða þúst samviskubit yfir "the extreme laziness" sem hefur verið á manni í í páskafríinu. Ég hef nánast ekkert gert! .. nema spila fótbolta, vera í tölvunni og djammað aðeins. En hey! Þá hugsaði ég. Þetta er nú páskafrí, og ef þetta á að heita frí, þá er nú bara eins gott að taka sér frí! Annars fyrir þá sem nýta frí-ið til að vinna, þá er það náttúrulega bara mjög sniðugt líka. En að hafa samviskubit fyrir að vera latur í fríi. Það er alger óþarfi.
Kominn með æði fyrir einu lagi sem er spilað á X-inu stöku sinnum. Þetta er nú ekkert glænýtt lag en mjög róandi eitthvað. Here it is: The Postal Service - Such Great Heights . Love it. Jámms!
Síðustu dagar hafa semsagt verið mjög 'nice' .. Sofi sofi sof, spörk hafa dunið á boltum og létt hefur verið á bjórflöskum. Venjulega drekk ég Viking Gylltan en núna síðast drakk ég Budweiser Budvar og er þetta ekki sami Budweiser og Steini kallinn drekkur (sem er hryllilega vondur) No offence Stone! .. heldur er þetta tékkneskur eðalbjór. Mæli með honum!
Now, plan-ið fyrir síðustu helgi fór forgörðum. Plan-ið var s.s. að djamma ekki og hanga heima í leti og kannski læra smá. (Yeah right =P) Ég hef ekkert lært heima í páskafríinu, og ég nennti ekki að vera heima og vera í fríi frá fótboltanum, þannig að ég keyrði bara á ak til að fara á æfingar. Og svo djammaði ég eiginlega báða dagana um helgina, ehm (s.s. Lau. og Sun.) Öss!
Jáh, Jón Þór kom í heimsókn. Hann nær alltaf að draga mig á djammið =P en þau djömm hafa yfirleitt verið snilld. Á laugardaginn andskotaðist maður í Sjallann, á.. err, hvað var nú aftur í Sjallanum þá? Man ekki! Anyways, fór með Jóni Þór en við vorum haug-ölvaðir! Það var samt hörkufjör í Sjallanum og hitti maður fullt af fólki. Palla kallinn (raufarhöfn-ingur ..) og Steina (Stone!) og Þóreyju og Magga. Svo voru.. err, man nú ekki eftir miklu en það voru allavega fullt af konum og bjór!.. og dansi! Ég týndi Jóni Þór snemma eins og venjulega en Hössi kallinn var driver og reddaði okkur báðum heim einhvern veginn.
Páskadagurinn byrjaði svo með smá þynnku, ekkert nema gott um það að segja svo sem. Err.. svo lá ég bara í leti allan páskadaginn held ég, þangað til ég fékk Jón Þór aftur í heimsókn. Hann bara: "á ekkert að djamma í kvöld eða?" Ég bara.. "err err.. maður kýkir kannski með þér niðrí bæ, í einn bjór" Svo varð bjórinn af tveim, og tveir bjórar að skotum og þriðja bjór.. En það var samt hörkufjör! Það var svo pakkað á Kaffi Ak að það var biðröð fyrir utan í smá tíma. Hitti Gunna og Þóru ex-bosses, Svenna og Jóhönnu Elínu og einhverja fleiri. Ýkt fjör. Hitti nokkra Magnamenn og þeir bara: "Bíddu, ert þú ekki að fara á æfingu í bítið eða?" Ég bara "Sömuleiðis!" Hehe. Sofnaði kl. fimm eða eitthvað.
Annar í páskum: Reif mig á fætur kl. 10:30! Æfing, ég hélt að ég myndi deyja þegar klukkan hringdi. Skellti í mig tveim banönum og kaffibolla og æfingin var bara mjög hressandi. Magnað alveg. Þeir Magnamenn sem ég hitti á djamminu kvöldið áður létu nú ekki allir sjá sig =P (suckers!) Svo fór maður aðeins á rúntinn fyrir svefn aldarinnar.
Vaknaði í "morgun" kl. 12:30 eftir laaaangan og góóóóðan svefn. Bam! Fór í tölvuna að blogga, drekkandi kaffi og hlusta á fína tónlist. Og núna er ég orðinn svangur! ... Ætla fara út að finna mér eitthvað að borða. Bæjó.
Fullyrðing vikunnar kemur frá Möllu frænku!. "Ég veit sko alveg hvað klaki er.. það er vatn sem dó úr kulda!" .. =P hehe.
Ace Johnson
04. apríl 2007 klukkan 15:51
Páskafríið komið, nánast ekkert að gera nema að sofa. ZzZzzzzz... Það er svo gott að sofa..
Maður var nú reyndar kominn á lappir kl 10:30 í morgun.. en ég hef varla gert handtak síðan. Netið 'browse'-að, kýkt á Liverpool.is, Fotbolti.net, MySpace og eftir það fór ég aðeins að dútla mér við nýju undirsíðurnar á bloggar: "Music Videos" og "Funny Videos" Er að bæta við myndböndum smátt og smátt. Jebbsí.
Fékk mér svo lýsi, skyr og kaffi. Kaffi! Margir hata, eða þola ekki kaffi. Mörgum finnst kaffi bara vont og jafnvel gagnslaust. Sumum finnst kaffi gamaldags og flestir undir tvítugs drekka bara aldrei kaffi. Ég varð nýlega 'hooked' á kaffi. Mér finnst kaffi gott og það fyrsta sem ég geri á virkum degi er að skella í mig kaffibolla. Why?! Það svínvirkar! Þetta virkar eins og eldsneyti sem kemur manni í gang á morgnanna. Alger snilld. Hins vegar er ekki hollt að drekka 4 bolla á dag eða meira. Einn - tveir bollar á dag gera manni engan skaða. Þvert á móti. Jæjah..
"Gaman" að segja frá því að ég fékk SMS frá Daxa um daginn. Ætli það hafi ekki verið 1. apríl líka. Anyways, sms-ið hljóðaði einhvern veginn svona: "Hæ, geturðu hringt í mig!.. Need 2 talk! í síma 5359988. Minn er batteríslaus" ... Og viti menn! Ég er náttúrulega góður gaur og hringdi, fyrst að Daxi honey þurfti svona "endilega" að tala við mann. Nei nei, kemur ekki: "Góðan daginn, þetta er hommalínan blablabla, ýttu á 1 fyrir .. blablablah! o.s.fv. ... " Ég hringdi beint í Daxa og skammaði hann fyrir að skemma daginn fyrir mér =P Nei gríííín! Þetta var bara fyndið. =)
Núh, Loksins unnum við (Magni) leik í Lengjubikarnum og var það mjög sætur sigur. 3-2 sigur gegn Reyni/Dalvík. Og loksins fékk ég að byrja inná líka, fékk meirað segja númerið mitt #11 einnig. Var settur á vinstri kantinn þar sem ég á heima og var bara sáttur með mína frammistöðu. Maður spilaði nú bara fyrri hálfleik samt, og var það alveg nóg fyrir mig enda alveg búinn á því í leikhléinu.
Mér fannst við betri í leiknum, allavega í fyrri hálfleik en Reynir/Dalvík skoraði fyrsta markið þrátt fyrir það. Hreggó kallinn jafnaði bara mínútu síðar og kom okkur svo yfir 2-1 þegar meira var liðið af fyrri hálfleik. Svo misstum við fyrirliðann Ingvar útaf rétt fyrir leikhleíð og vorum við einum færri eftir það.
Í seinni hálfleik komust Reynir/Dalvík betur inní leikinn og sóttu mikið. Viktor (gaur sem er með mér í ensku =P) jafnaði með rosalegu skoti fyrir utan teig. Svekkjandi, en undir lokinn datt boltinn fyrir Palla bakvörð og skoraði hann sigurmarkið á 88. mínútu við gríðarleg fagnaðarlæti á bekknum. Mikið gaman, mikið fjör.
Ekki nóg með að við fengum þrjú stig hjá Reyni/Dalvík, heldur fengum við önnur þrjú gefins frá Leikni F. Takk Jói! En.. þeir voru víst með ólöglegan varamann þegar þeir kepptu við Magna helgina áður. Hrikalegur dómur fyrir Jóa og Egil og þetta eru ekki þrjú stig sem Magnamenn geta verið stoltir af, að hafa fengið. Svona er þetta nú samt stundum.
Plan helgarinnar er ekki merkilegt. Ég held að ég geri bara ekki neitt nema hanga heima á Húsavík.. ... Ég meina hanga á Húsavík þar sem Mamma og Pabbi eiga heima! ekki ég! ... og læri kannski smá. Stefni á djammlausa helgi en það gæti nú breyst. Maður verður að vera duglegur síðustu vikurnar í skólanum. Jamms. Svo þarf maður að fara finna vinnu og húsnæði bráðum. Fullt að gera.
Þetta er orðið ágætt núna. Heyri í ykkur.
Ace Johnson